Slippurinn í Vestmannaeyjum
Maður býst ekki endilega við því að finna einn frumlegasta veitingastað landsins í Vestmannaeyjum, en Slippurinn kemur sannarlega á óvart. Karakterinn er töff, hlýlegur og einfaldur, en Sveinn, þjónninn frábæri úr Bárðardal, sá um að andrúmsloft og húmor væri í lagi. Þegar okkur bar að garði, var langborð með útskriftarveislu. Tilefnin virtust samt af ýmsu tagi, því að þessi stóri staður var sneisafullur, en þjónustan flæddi ótrúlega vel.
Matargerðin er fyrsta flokks hjá honum Gísla Matt, en það var Gísli sem setti á stofn Matur & Drykkur úti á Granda. — FERÐAST UM ÍSLAND.
— VESTMANNAEYJAR — FERÐAST UM ÍSLAND —
Hægeldað svartfuglsegg með sítruskremi, smá þurrkuðu lambi og X.O. sósu hljómar ekki bara frumlegt, heldur ætti rétturinn heima á heimsmeistaramóti. Það gera ekki síst hráefnin, en stefnan er að nota hráefni úr „héraði“, tína jurtir og nýta það sem gefst best hverju sinni.
Slippurinn er fjölskyldufyrirtæki, móðir Gísla Matt, hún Kata Gísla, átti hugmyndina að því að setja staðinn upp í vélsmiðjunni Magna, elsta steinsteypta húsinu í Eyjum, en þau Auðunn voru nýflutt til Eyja aftur og langaði að gera eitthvað spennó. Indíana, systir Gísla sér um framkvæmdastjórn, en í raun má segja að þau séu öll fjögur allt í öllu, enda greinilega með augu á hverjum fingri.
Allt hráefni er eins ferskt og hugsast getur og þar liggur galdur. Samt er það ekki síst neistinn og tilfinningin fyrir jafnvægi sem er í lagi hér. Ef ég væri Michelin njósnari, væri þessi staður kominn með stjörnu núna, út á karakter og matargerð. Það er gott að panta með fyrirvara þegar maður ætlar til Vestmannaeyja, það eru margir búnir að fatta þessa perlu í matargerð á Íslandi.
Margir hafa haft samband og við viljum gjarnan heyra frá fleirum í ferðaþjónustunni— — FERÐAST UM ÍSLAND —
Ýmislegt í Eyjum: HERJÓLFUR — GOTT — ÉTA — SLIPPURINN – ELDHEIMAR – LAVA GUESTHOUSE – SAGNAHEIMAR — LANDLYST – EINSI KALDI – SÆHEIMAR — LANDAKIRKJA — STAFKIRKJA – RIBSAFARI – FUGLASKOÐUNARHÚS – SKANSINN — VISITVESTMANNAEYJAR –