Hnoss – sannkallað hnossgæti í Hörpu

Hnoss restaurant í Hörpu harpa hnossgæti veitingastaður í hörpu stefán viðarsson
Hnoss restaurant í Hörpu

Hnoss – sannkallað hnossgæti í Hörpu

Það er ævintýraför að skella sér á Hnoss í Hörpu í svokallaðan bröns, eða dögurð eða hvað við eigum að kalla léttan hádegisverð með fjölbreyttum réttum. Staðurinn er mjög hlýlegur, þar er bjart og góð hljóðvist, þjónusta góð og notaleg og eldamennskan fyrsta flokks.

VEITINGA- OG KAFFIHÚS FERÐAST UM ÍSLAND ÍSLENSKTHNOSSGÆTI

.

Lífið er of stutt fyrir lélegar bubblur

Við hittum Fanneyju Dóru landsliðskokk, sem hleypti Hnossi af stokkunum ásamt Stefáni Viðarssyni. Þau eru með þeim hressari í bransanum og ákváðu strax að gera staðinn hlýlegan, opna inn í eldhús og hafa langan setubar. Útkoman er frábær, en þau fást við ýmislegt fleira. Nýlega fóru þau í kampavínssmökkun í Frakklandi, þar sem þau merktu við hvað þeim fannst gott við hvert vín. Út frá því er verið að framleiða sérstakt kampavín fyrir Hnoss. En eins og Fanney Dóra orðar það, þá er lífið of stutt fyrir lélegar bubblur. „Maður gæti orðið fyrir strætó í dag þannig að það er eins gott að vera búinn að fá góðar bubblur. Það þurfa að vera góðar bubblur og góður klósettpappír. Þá er lífið bara fínt.“ En það á sannarlega við um matföngin, lífið er of stutt fyrir bragðdaufan og ófrumlegan mat gæti verið kjörorðið á Hnoss.

Það kemur flest á óvart á hlaðborðinu, ekki er það bara fallegt, heldur líka hnossgæti hvert og eitt. Sem dæmi gefur þarna að líta villisveppa-hummus, hvannarsmjör, reyktar gulrætur, frumlegasta brauðterta á Íslandi sem var jafnframt lostæti, fjölbreytt salöt. Svo eru hefðbundnari réttir af ýmsu tagi á smærri skömmtum, reyktur lax með hleyptu eggi, rauðspretta með kartöflum.

Frumlegasta brauðterta á Íslandi og ein sú besta
Reyktur lax með hleyptu eggi og Hollandaise sósu
Villisveppahummús og hvannarsmjör
Eftirréttirnir voru hver öðrum betri
Albert og Stefán Viðarsson einn eigenda Hnoss restaurant
Súrdeigssnitta með reyktri gulrót
Steikt rauðspretta
Hnoss – sannkallað hnossgæti í Hörpu
Hnoss – sannkallað hnossgæti í Hörpu

VEITINGA- OG KAFFIHÚS FERÐAST UM ÍSLAND ÍSLENSKTHNOSSGÆTI

.

Auglýsing

Meira úr sama flokki

Vöfflur – klassísk uppskrift úr bókinni Við matreiðum

Vöfflur. Fátt er dásamlegra en ilmur af nýbökuðum vöfflum. Það er einhver óútskýrð hlýja sem fylgir þeim. Hér er uppskrif úr hinni ágætu bók Við matreiðum, bók sem ég eignaðist fyrir 35 árum og fletti reglulega upp í. Við matreiðum er hin fínasta bók, hún kom fyrst út árið 1976 og nýlega kom sjötta útgáfan út.

Peruterta, þessi gamla góða

20160830_152036

Peruterta. Í minningunni voru perutertur í öllum barnaafmælum og flestum fermingarveislum í mínu ungdæmi. Botnarnar voru mjúkir og gegnblautir. Þegar ég sá á fasbókinni að Borghildur Jóna var að baka eina slíka fyrir afmæli sonar síns, fékk ég fortíðarþráhyggjukast og bað hana um mynd og uppskrift. Ég bara stóðst ekki mátið.

Hjónabandssæla

Hjónabandssæla

Mjúk og góð hjónabandssæla er góð með kaffinu. Stundum verða hjónabandssælur seigar, kannski vegna þess að þær eru bakaðar of lengi. En eflaust líkar einhverjum að hafa þær seigar.