Hveitikímpitsa

Pitsa með hveitikímbotni hveitikím wheat germ pizza hvað er hveitikím prótin vítamín trefjar hollt hollusta hveitikímkaka hveitikímkökur
Pitsa með hveitikímbotni. Frábær leið til að njóta góðs af hollustu hveitikíms

Pitsa með hveitikímbotni

Hveitikím er næringarríkt og stútfullt af próteinum, trefjum og nauðsynlegum vítamínum og steinefnum. Frábær leið til að njóta góðs af hollustu hveitikíms.

HVAÐ ER HVEITIKÍM?

HVEITIKÍMPITSURHVÍTLAUKSOLÍA

.

Pitsa með hveitikímbotni tilbúinn í ofninn

Pitsa með hveitikímbotni

Pitsubotn

2/3 b hveitikím

1/4 b vatn

1/4 tsk oreganó

1/4 tsk timian

Blandið saman hveitikími, vatni og kryddi og mótið/fromið þunna köku á smjörpappír. Bakið við 185 °C í 10-12 mín.

Dreifið pitsusósu yfir botninn og mozzarellaosti. Bakið við 200°C í um 10 mín. Stráið yfir smávegis af grænu salati og furuhnetum. Berið fram með ólífuolíu (ólífuolía og marinn hvítlaukur).

Einnig má útbúa hveitikímkökur. Það er ágætt að móta kökurnar með fingurgómunum og borðhníf. Hæfileg stærð miðað við 3 msk af hveitikími er 10 cm kaka.

HVEITIKÍMPITSURHVÍTLAUKSOLÍA

.

Auglýsing

Meira úr sama flokki

Vöfflur – klassísk uppskrift úr bókinni Við matreiðum

Vöfflur. Fátt er dásamlegra en ilmur af nýbökuðum vöfflum. Það er einhver óútskýrð hlýja sem fylgir þeim. Hér er uppskrif úr hinni ágætu bók Við matreiðum, bók sem ég eignaðist fyrir 35 árum og fletti reglulega upp í. Við matreiðum er hin fínasta bók, hún kom fyrst út árið 1976 og nýlega kom sjötta útgáfan út.

Peruterta, þessi gamla góða

20160830_152036

Peruterta. Í minningunni voru perutertur í öllum barnaafmælum og flestum fermingarveislum í mínu ungdæmi. Botnarnar voru mjúkir og gegnblautir. Þegar ég sá á fasbókinni að Borghildur Jóna var að baka eina slíka fyrir afmæli sonar síns, fékk ég fortíðarþráhyggjukast og bað hana um mynd og uppskrift. Ég bara stóðst ekki mátið.

Hjónabandssæla

Hjónabandssæla

Mjúk og góð hjónabandssæla er góð með kaffinu. Stundum verða hjónabandssælur seigar, kannski vegna þess að þær eru bakaðar of lengi. En eflaust líkar einhverjum að hafa þær seigar.