Hótel Blönduós

Hótel Blönduós Hótel BlönduósBlönduós kirkjuhótel Lúxusgistingu á Norðurlandi Sérstök gisting á Íslandi Gisting í gömlum kirkjum Einstök upplifun á Íslandi Veitingastaður á Blönduósi Hótel með góðum mat Ævintýragisting á Íslandi Söguleg hótel á Íslandi Rómantísk gisting á Norðurlandi Gisting með sjávarútsýni Matreiðsla á Norðurlandi Vegan réttir á veitingastað Íslandsferð 2025 Ferðalög innanlands Hvar er hægt að gista á Blönduósi? Lúxushótel á Norðurlandi með veitingastað Gisting í kirkju á Íslandi Matarupplifun og gisting á Blönduósi Einstakt hótel á Norðurlandi með sögu Gisting fyrir rómantíska helgarferð á Íslandi Veitingastaður með sjávarréttum og lambakjöti Vegan valkostir á veitingastað á landsbyggðinni Gisting með baðkari og útsýni yfir hafið Hótel á Norðurlandi með sögulegu andrúmslofti Hótel með góðum mat og hlýlegri þjónustu Kirkja breytt í hótel á Íslandi Skemmtilegur áfangastaður fyrir sumarfríið
Hótel Blönduós

Hótel Blönduós

Gamli bærinn á Blönduósi hefur tekið stakkaskiptum. Ef hugmyndin er að gera vel við sig og lyfta sér ærlega upp frá hversdagsleikanum, er varla hægt að hugsa sér ævintýralegri gistingu en í 130 ára kirkju á Blönduósi. Hótel Blönduós hefur gengið í endurnýjun lífdaga á frumlegan, smekklegan og glæsilegan hátt og hluti þess er svítan í gömlu kirkjunni. Það dettur eiginlega af manni andlitið.

Þegar nýja kirkjan var tekin í notkun fyrir rúmum 30 árum, var gamla kirkjan afhelguð, en við endurgerðina 2023 var upphaflegt útlit haft að leiðarljósi að miklu leyti, m.a.s. er orgelið á sínum stað, gamla ljósakrónan úr Dómkirkjunni og síðasta sálmaskráin hangir uppi, en málað í flottum litum, hægt að fá sér espresso í fallegum bollum og njóta í antik húsgögnum, eða renna sér í baðkar uppi með útsýni yfir hafið. Eins og krakkarnir segja, þetta er alveg rugl flott! Á kirkjuloftinu eru líka tvö einstaklingsrúm.

Þó að augljóslega hafi þetta upphaflega verið kirkja, er tilfinningin ekki sú að það þurfi að breytast í heilaga persónu, en ljóst er að allar góðar fyrirbænir í gegnum tíðina hafa skilið eftir einstakan frið og ró í andrúmsloftinu. Hér tengjumst við innri kjarnanum okkar og bjóðum hann velkominn.

Í veitingastaðnum í Sýslumannshúsinu, sem er elsti hluti hótelsins síðan 1943 (byggt árið 1900), er sama sagan, haldið er í anda hússins á afar smekklegan hátt, innanstokksmunir einstaklega vel valdir og þar heldur t.d. gamla dansgólfið sér. Inga Rut veitingastjóri dekraði við okkur, en magamálið leyfði víst ekki að fá alla réttina af matseðlinum hjá honum Árna kokki, þó að löngunin væri vissulega til staðar.

Hótelið hefur látið gera upp fleira en kirkjuna. Í gömlu Pétursborg hafa verið gerðar glæsilegar íbúðir með blöndu af gömlu og nýju, en í AA húsinu við Blöndu eru hótelherbergi. Í báðum þessum húsum eru verandir þar sem hægt er að falla í stafi yfir náttúrunni, niðnum, fuglasöngnum. Gamla bakaríið Krútt hefur verið gert að stórum sal, þar sem hægt er að taka á móti stórum hópum og tónleikar haldnir.

Örn Arnarson og Hildur Ýr Arnarsdóttir reka Hótel Blönduós – við tökum ofan fyrir þeim, allt til fyrirmyndar. Yfirmatreiðslumaður er Árni Þór Hjartarson og veitingastjóri Inga Rún Ómarsdóttir. Anna Birna aðstoðarhótelstjóri tók ljúflega á móti okkur í morgunmatnum. Og til gaman má geta þess að hótelið flytur inn sín eigin vín, m.a. Urgestein frá Oster.

BLÖNDUÓS —  VEITINGASTAÐIR — ÍSLAND —

.

Fallegt útsýni úr veitingasalnum
Eins og ferskur sunnanblær að vori! Íslenskur burrata með sýrðum kirsuberjatómötum, basil olíu og grilluðu focaccia.
Sjávarréttasúpa með tómötum, sítrónugrasi, engifer og kókos með koriander-lime rjóma.
Sýslumaðurinn er mjög óvenjulegur borgari með hægelduðu og rifnu lambi og chili rabarbarasósu sem rífur svolítið í.
Hvítur, stinnur og fallegur ofnsteiktur saltfiskur með sveppa- og bjarnarlauks risotto, smjörgljáðum aspas og salsa verde.
Það er freistandi að vera bara vegan þegar alvöru kokkar sýna listir sínar, hér var saltbökuð sellerírót með ítölsku kartöflusalati, reyktri paprikusósu og sýrðum lauk. Vinstra megin á diskinum er brasserað lambalæri með hvítlauks kartöflustöppu, og demi glace & grilluðu grænmeti.
Bakað hvítsúkkulaði og skyr mousse með rabarbara krapi, berjaseyði, hafrakruðeríi og mintu.
Albert, Inga Rún veitingastjóri og Árni kokkur
Gamla kirkjan á Blönduósi
Orgelið í kirkjunni
Afar smekklegt er innandyra í kirkjunni
Expressó bragðast betur í fallegum bolla
Í gömlu kirkjunni á Blönduósi

BLÖNDUÓS —  VEITINGASTAÐIR — ÍSLAND —

.

Auglýsing

Meira úr sama flokki

Tabúle eða tabbouleh – Norður-Afrískt búlgusalat

Tabúle eða tabbouleh - Norður-Afrískt búlgusalat

Tabúle eða tabbouleh - Norður-Afrískt búlgusalat. Kristín Jónsdóttir Parísardama bauð í pikknikk í París fyrr í sumar. Auk laukbökunar kom hún með búlgusalat, undurgott salat frá Norður-Afríku. Hún segir að uppskriftirnar séu eiginlega jafnmargar og héruðin og jafnvel fleiri, því hver hefur sitt lag og sinn smekk. Uppistaðan eru búlgur eða kúskús. „Í líbanska afbrigðinu sem ég geri nánast alltaf, eru hlutföllin þannig að salatið er mjög grænt. Minna af búlgum og meira af steinselju og myntu. Mælt er með að nota flatlaufa steinselju, því sú krullaða er beiskari.

SaveSave

SaveSave

SaveSave

Essensia – veitingahús

Essensia dscf3801 Essensia dscf3776 

Essensia - Veitingahúsið Essensia á Hverfisgötu stimplar sig strax hressilega inn í veitingahúsaflóru höfuðborgarinnar svo eftir er tekið. Faglega að öllu staðið og hinn ítalski sunnan blær staðarins er kærkomin viðbót í fjölbreyttri matarborg sem Reykjavík er. Klassískir suðrænir bragðgóðir réttir einkenna staðinn. Réttir sem gestir geta deilt og eru hvattir til að deila. Enn ein úrvalsrósin í hnappagat Hákons Más Örvarssonar.

Hnífapörin á meðan á máltíð stendur og í lok máltíðar

Hnífapör á meðan á máltíð stendur og í lok máltíðar. Á meðan máltíð stendur yfir leggjum við hnífapörin eins og efri myndin sýnir, látum gaffalinn(tindana) snúa niður. Í lok máltíðar leggjum við hnífapörin saman eins og á neðri myndinni. Hvort tveggja er merki til þjónustufólks.

Fyrri færsla