
Döðlukonfekt
Í veislu á dögunum smökkuðum við dágott döðlukonfekt, Karl Már útvegaði okkur uppskrift og útbjuggum gotteríið. Það mætti minnka smjörið og bæta við kókosolíu. Svo er vert að hafa í huga að döðlur eru sætar. Það má auðveldlega minnka sykurmagnið verulega bæði hér og víðar. Við skulum leggjast á eitt um að minnka sykur í mat og forðast sætan tilbúinn mat – verum meðvituð.
.
Döðlukonfekt
500 g smjör
50 g púðursykur
2/3 tsk salt
700 g döðlur
6 bollar Rice Krispies
Bræðið smjör og púðursykur saman í potti á lægsta hita og hrærið í af og til.
Klippið döðlur með hreinum skærum á meðan í stóra skál. Hellið úr pottinum yfir þær og blandið vel. Þá er rísbrakinu hrært varlega saman við, en blandað vel. Setjið bökunarpappír í ofnskúffu og sléttið vel með spaða. Kælið.
400 g gott dökkt súkkulaði brætt og sett yfir og kælt.
Skerið í litla bita.
.
.