Bernaisesósa

Bernaise sósa essens extragon Gestir í boði Örvars Más og Þóru voru, auk okkar Bergþórs, Margét Líndal Steinþórsdóttir og Mogens G. Mogensen. Margrét og Örvar eiga og reka saman Reykjavík Culture Travel ferðaskrifstofuna sem sér hæfir sig í menningartengdri ferðaþjónustu. Örvar Már Þóra sósa með grillkjöti grillmatnum lambi lambalæri nautalund
Bernaisesósa

Bernaisesósa

8 eggjarauður
400 g smjör (brætt)
2-3 msk Bernaise essens
eitt box ferskt estragon
Rjómasletta (má svo sannarlega sleppa)
Estragongreinarnar skolaðar og laufin hreinsuð af stilkunum, og grófsöxuð niður, sett til hilðar.
Þeytið Bernaise essensinn og eggjarauðurnar í vatnsbaði þar til þær verða stífar, bætið smjörinu (sem búið er að bræða) við hægt og rólega í mjórri bunu. Og þeyttarinn látinn vinna á sósunni allan tímann.
Bætið estragonlaufunum við og hrærir saman við sósuna, þegar þarna er komið við sögu má bæta við rjóma og hræra við. Þarf ekki en það má og þá í þeim skammti sem hver og einn vill!

Örvar már þóra Bernaisesósa bernaise sósa með nautakjöti
Bernaisesósa
Gestir í boði Örvars Más og Þóru voru, auk okkar Bergþórs, Margét Líndal Steinþórsdóttir og Mogens G. Mogensen. Margrét og Örvar eiga og reka saman Reykjavík Culture Travel ferðaskrifstofuna sem sér hæfir sig í menningartengdri ferðaþjónustu.

Örvar Már og Þóra buðu upp á þessa góðu Bernaisesósu í skemmtilegu matarboði á dögunum

— BERNAISESÓSA —

Auglýsing

Meira úr sama flokki

Steiktar kartöflur með rósmarín

Steiktar kartöflur með rósmarín. Rósmarín og kartöflur passa einstaklega vel saman. Þessi kartöfluréttur er að grunni til frá Nigellu vinkonu minni. Á hvern disk setur hún gróft saxað salat og svo kartöflurnar þar yfir. Sem sagt aðalréttur. En ég lét duga að hafa kartöflurnar sem meðlæti.

Sælgætisterta Carolu – svakalega góð

Sælgætisterta Carolu. Það má vel nota hinar ýmsu pakkakökur, sem fást í búðum, sem grunn að einhverju öðru og enn betra. Hér er gott dæmi um það, sannkölluð sælgætisterta sem ég hámaði í mig af mestu áfergju. Leiðir okkar Carolu lágu fyrst saman þegar við af miklum móð máluðum á postulín fyrir allmörgum árum. Síðan þá hef ég oft fengið hjá henni hið besta kaffimeðlæti og aðrar veitingar.