Gleðileg jól
Við óskum ykkur gleðilegra jóla og alls hins besta á nýju ári, kæru Íslendingar. Megi gæfusól ykkar skína sem skærast, með því til dæmis að hrista upp í rútínunni, gera lífið meira spennandi og lifa lífinu lifandi! Alúðarþakkir fyrir samfylgdina á árinu.
— BERGÞÓR —
MUNIÐ: Þann 27. desember verður dregið úr réttum svörum í gjafaleiknum: VINSÆLUSTU UPPSKRIFTIRNAR Á ALBERT ELDAR – endilega takið þátt með því að smella HÉR
Í fréttum ársins er þetta helst:
–Nýr vefur fór í loftið í febrúar með margföldun á innlitum
-Fórum árlegan JÓLARÚNT með smá glaðning til nokkurra vina
-slógum öll met með því að fara í fimmtán veislur á sex dögum
-upplifðum matarmenningu nokkurra borga.
–Íslenskar færslur voru sérmerktar
-Enn fleiri borðsiðafærslur litu dagsins ljós
-Nú er hægt að fá gjafabréf á borðsiðanámskeið og viðskiptamálsverði
-þriggja ára ánægjulegu samstarfi við Húsfreyjuna lauk
-og ég smakkaði ótrúlega vonda tertu
Svo kemur nýtt ár…. Hvern hefur ekki langað til að setja sér markmið, en byrjað um leið að búa sér til afsakanir stórar og smáar … kannski finnst öðrum það bara della … best að finna annan betri tíma …
Þannig erum við sjálf oft helsti þröskuldurinn. Látum okkur dreyma og eltum draumana, munið að draumar rætast. Áramót geta verið vel til þess fallin að hefjast handa, ef okkur sýnist svo. Ég þori, get og vil! Ég er það sem ég hugsa!
Þessi atriði eru dæmigerð um áramót, en geta átt við hvenær sem er:
- Finnum eldmóðinn og viðhöldum honum
- Sinnum áhugamálum
- Styrkjum tengslanet
- Viðhöldum og eflum samband við fólk sem hefur góð áhrif á okkur
- Uppgötvum eigin hæfni og vinnum með hana.
Við getum allt sem við viljum.
Gangi okkur vel og takk fyrir að lesa.
Hér er neðan eru nokkrar myndir frá JÓLARÚNTINUM