Flatkökur ömmu Mörtu – gamaldags íslenskar flatkökur

Gamaldags íslenskar flatkökur eftir uppskrift Mörtu Guðjónsdóttur frá Berjanesi í Austur-Eyjafjöllum.

0
Auglýsing
Flatkökur ömmu Mörtu

Flatkökur ömmu Mörtu – gamaldags íslenskar flatkökur

Þessar dásamlegu flatkökur eiga sér skemmtilega sögu. Marta Guðjónsdóttir frá Berjanesi í Austur-Eyjafjöllum gaf móður Gests Andrésar Grjetarssonar uppskriftina og hún gekk síðan áfram til hans. Gestur birti uppskriftina ásamt myndum í Facebook-hópnum Gamaldags matur og gaf góðfúslegt leyfi fyrir birtingu hennar hér.

„Þessar kökur eru hreint dásamlegar,“ segir Gestur. Mikilvægt er að hnoða deigið ekki of mikið, því þá verða flatkökurnar stífari.

Auglýsing

FLATBRAUР – KAFFIMEÐLÆTIRÚGMJÖL  – ÍSLENSKT  – SMÁKÖKUR  –  LAUFABRAUР—

Flatkökur ömmu Mörtu

3 bollar hveiti
1 bolli haframjöl
1 tsk. salt
Sjóðandi vatn eftir þörfum
Smjörlíki til penslunar

Blandið hveiti, haframjöli og salti saman. Hellið sjóðandi vatni varlega út í og blandið saman án þess að hnoða deigið mikið. Deigið á að vera fremur blautt og laust í sér.

Mótið deigið í rúllu og penslið utan á það með smjörlíki svo það haldist mjúkt og rakt.

Skerið bita af deiginu og fletjið þunnt út. Skerið síðan kringlóttar kökur, til dæmis með undirskál, svipað og þegar laufabrauð er skorið út.

Flatkökurnar má baka beint á mjög heitri eldavélarhellu. Hitið helluna vel og bakið kökurnar báðum megin þar til þær hafa fengið fallega dökka bletti. Gott er að stinga örlítið í þær með gaffli eða öðru hentugu áhaldi svo loft komist úr þeim.

Það getur myndast töluverður reykur þegar flatkökurnar eru bakaðar við svo mikinn hita og því er gott að lofta vel út.

Raðið bökuðum flatkökum hverri ofan á aðra. Þegar allar eru tilbúnar má snúa bunkanum við svo rakinn dreifist jafnt og kökurnar haldist mjúkar.

Flatkökurnar geymast mjög vel í frysti. Gott er að setja um fimm saman í poka og frysta. Þær má síðan hita örstutt í örbylgjuofni og verða þá nánast eins og nýbakaðar.

Ef hellurnar á eldavélinni eru með ofhitavörn og ná ekki nægilega háum hita er einnig hægt að nota þunga pönnu eða pönnukökupönnu, til dæmis á gashellu.

Flatkökur ömmu Mörtu
Marta Guðjónsdóttir (1912–1993) og Andrés Andrésson (1901–1984), hjónin á Berjanesi.

Fleira áhugavert:

— Epli – Fiskur í ofni — Skyrtertur – Bolungarvík  – Nutella  — KryddbrauðFormkökurMorgunmatur —

Fyrri færslaKókoskarrýsúpa – besta súpa á Íslandi
Næsta færslaRabarbarapæ með súkkulaði – sjúklega gott