Dönsk ljúffeng lifrarkæfa

Dönsk ljúffeng lifrarkæfa DANMÖRK auður leifsdóttir
Dönsk ljúffeng lifrarkæfa, mjúk og bragðgóð.

Dönsk ljúffeng lifrarkæfa

Lifrarkæfa þykir ómissandi á dönskum jólaborðum og sú hefð hefur líka fyrir löngu fest rætur hér á landi. Þessa uppskrift fékk Auður Leifsdóttir frá kokkunum á Satt á Icelandair Natura Hótel og hefur þróað hana og betrumbætt. Lifrarkæfa er kjörin sem forréttur eða á hátíðarborð. Einstaklega ljúffeng, mjúk og bragðgóð lifrarkæfa.

🇩🇰

LIFRARKÆFADANMÖRKLIFURJÓLAUPPSKRIFTIRRAUÐRÓFUR

🇩🇰

Auður Leifsdóttir

Dönsk lifrarkæfa

400 g grísaspekk
2 laukar
2 epli
100 g kryddsíld

Setjið einu sinni í gegnum hakkavél

1 kg grísalifur

Setjið allt aftur í gegnum hakkavélina ásamt grísalifrinni.

4 tsk pipar
3 tsk salt
1/4 tsk mulinn negull
1/4 tsk kanill
1/2 tsk allspice
3 egg
4 msk hveiti

Blandið þurrefnum og kryddum saman við lifrarblönduna og setjið í form. Bakið í vatnsbaði við 90 gráður þar til að kjarnhiti nær 70 gráðum.

Kælið eða berið fram heitt með steiktum sveppum og beikoni. Það er líka gott að hafa danskt rúgbrauð, rauðrófur og súrar gúrkur með.

Dönsk ljúffeng lifrarkæfa

🇩🇰

LIFRARKÆFADANMÖRKLIFURJÓLAUPPSKRIFTIRRAUÐRÓFUR

— DÖNSK LJÚFFENG LIFRARKÆFA —

🇩🇰

Auglýsing

Meira úr sama flokki

Bee’s Wrap utan um matinn

Bee’s Wrap utan um matinn. Á netvafri mínu, í kjölfarið á banni Frakka við plastnotkun, rakst ég á Bee´s Wrap sem er bómullardúkur til að vefja utan um mat og geyma hann þannig. Utan um brauð, yfir deig, bakkelsið, yfir grænmetið...

Fyrri færsla
Næsta færsla