Pæ fyrir Nödju – Eiríkur Örn í eldhúsinu

Baka með fetaosti, tómötum, ólífum og rósmaríni – og einfalt súrdeigsbrauð fyrir letiblóð

0
Auglýsing
Pæ fyrir Nödju

Pæ fyrir Nödju

Eiríkur Örn Norðdahl rithöfundur er lunkinn í eldhúsinu og sér að mestu um matseldina á heimilinu. Hér deilir hann einni af sínum uppáhaldsuppskriftum, bragðgóðri pæi með fetaosti, tómötum, ólífum og rósmaríni. Með henni ber hann fram súrdeigsbrauð sem hann hefur þróað og einfaldað í gegnum árin og kallar með glöðu geði „súrdeigsbrauð fyrir letiblóð“.

Eiríkur gaf á sínum tíma út Plokkfiskbókina, þar sem finna má fjölbreyttar uppskriftir og fróðleik um einn af ástsælustu réttum landsmanna. Þegar þessi færsla birtist var nýjasta skáldsaga hans Einlægur Önd.

Auglýsing

BÖKUR   – SÚRDEIG   – ÍSAFJÖRÐUR   – PLOKKFISKUR   – LETI   – EIRÍKUR ÖRN

.

Eiríkur Örn, Nadja og börnin Aino og Aram

Pæ fyrir Nödju

Uppskriftin miðast við 28 cm bökuform. Fyrir minni fjölskyldu má auðveldlega helminga hana, en afgangar af þessu pæi eru yfirleitt fljótir að hverfa.

Botn
400 g hveiti
260 g smjör
4 msk vatn
2 msk maísmjöl
1 msk smjör til að smyrja formið

Hitið ofninn í 200°C.

Myljið smjörið saman við hveitið, helst í matvinnsluvél. Bætið vatninu út í og hnoðið þar til deigið verður slétt og þétt.

Smyrjið bökuform með smjöri og stráið maísmjöli yfir botninn. Fletjið deigið út, leggið það í formið og þrýstið því upp með köntunum. Forbakið botninn í 5 mínútur.

Fylling
6 egg
500 ml mjólk, rjómi eða blanda af hvoru tveggja
350 g fetaostur
2 litlir laukar eða 1 stór
4 hvítlauksrif
12–14 kirsuberjatómatar
20–30 svartar ólífur
2 greinar ferskt rósmarín
nýmalaður pipar
salt ef þarf
Aðferð

Þeytið saman egg og mjólk. Saxið helming fetaostsins smátt og hrærið saman við ásamt fínsöxuðum lauk og pressuðum hvítlauk. Hellið blöndunni í forbakaðan botninn.

Skerið kirsuberjatómatana í tvennt og dreifið þeim yfir ásamt ólífum og afganginum af fetaostinum. Saxið rósmarínið smátt og stráið yfir. Kryddið með pipar og salti eftir smekk.

Bakið í 45–50 mínútur í miðjum ofni, eða þar til fyllingin er stíf og fallega gyllt. Gott er að leyfa pæinu að hvíla í 10–15 mínútur áður en það er borið fram.

 

Súrdeigsbrauð fyrir letiblóð

Þetta er súrdeigsbrauð fyrir þá sem vilja sem minnst fyrir því hafa. Aðferðin er einföld og krefst lítillar vinnu, en gott er að gera ráð fyrir að byrja með deigið degi áður en bakað er.

350 g vatn
100 g virkt súrdeig
500 g hveiti (eða blanda af hveiti, heilhveiti og rúgmjöli)
10 g salt

Hrærið öllu saman þar til deig myndast. Það þarf ekki að hnoða. Látið deigið hvíla í að minnsta kosti 30 mínútur og teygið það síðan upp og brjótið yfir sjálft sig. Endurtakið þetta 1–5 sinnum með nokkru millibili, eftir því hvað hentar.

Setjið deigið í skál, leggið rakt viskustykki yfir og geymið í kæli í 12–36 klukkustundir.

Takið deigið úr kæli, teygið það einu sinni enn, penslið það með góðri ólífuolíu og látið það síðan standa við stofuhita í 1–3 klukkustundir undir röku viskustykki.

Hitið steypujárnspott með loki í ofni við 240°C í um klukkustund. Hvolfið deiginu varlega í heitan pottinn, setjið lokið á og bakið í 30 mínútur. Takið lokið af og bakið í 15 mínútur til viðbótar, eða þar til brauðið er fallega brúnt og stökkt.

Svo læt ég það standa í a.m.k. 30 mínútur áður en ég sker það. Þann tíma nota ég yfirleitt til að leggja eyrað að því og hlusta á brakið og svo þefa ég líka mikið af því. Þetta má skemmta sér við mikið lengur ef maður hefur tíma og brauðið er viljugt.

***

Salatið sem ég hafði með þessu var bara klettasalat með slatta af granateplafræjum og furuhnetum í einfaldri vinegrettu (ólífuolíu, balsamediki og dijon í hlutföllum sem maður bara smakkar til). 

BÖKUR  – SÚRDEIG  – ÍSAFJÖRÐUR  – PLOKKFISKUR  – LETI  – EIRÍKUR ÖRN

.

Fyrri færslaAfter eight – matarklúbburinn eftirminnilegi
Næsta færslaKaffiboð hjá Hjördísi Rut