Auglýsing
Maganettar og nettar meyjar dvalarheimilið uppsalir Ostahorn auðbjörg gunnasdóttir skinkuhorn fáskrúðsfjörður
Ostahorn eru best nýbökuð

Ostahorn

Auðbjörg Gunnarsdóttir er ein af þessum myndarlegu baksturskonum. Reglulega setur hún inn myndir af kaffimeðlæti sínu á Gamaldags matur á fasbókinni. Á meðan hún vann á Hjúkrunarheimilinu Uppsölum gáfu þær út uppskriftabókina Magamettar og nettar meyjar og seldu upp í skemmti- og námsferð til Kaupmannahafnar – svona á að gera þetta 🙂 Auðbjörg segir að til að fá meira bragð megi setja skinku inn í ostahornin.

👛

Auglýsing

BRAUÐBAKSTURBOLLURFÁSKRÚÐSFJÖRÐURKAUPMANNAHÖFNFASBÓKLEMON CURD

👛

Ostahorn

100 g 26% rifinn ostur
250 g hveiti eða heilhveiti
2 tsk lyftiduft
1 tsk sykur
75 g smjör
2 dl súrmjólk
egg til að pensla með
rifinn ostur og/eða sesamfræ

Blandið saman hveiti, sykri og lyftidufti.
Myljið smjörið saman við, blandið ostinum í og vætið með mjólkinni.
Hnoðið vel.
Fletjið deigið út í tvær kringlóttar kökur og skerið hvora köku í átta geira.
Vefjið þeim upp frá breiðari endanum og raðið þeim á smurða plötu eða plötu klædda bökunarpappír.
Mótið horn og látið mjóa endann á deiginu lenda undir horninu.
Penslið með sundurslegnu eggi og stráið rifnum osti og eða sesamfræjum yfir
Bakið við 200°C í 15-20 mín.

👛

Magamettar og nettar meyjar

👛

BRAUÐBAKSTURBOLLURFÁSKRÚÐSFJÖRÐURKAUPMANNAHÖFNFASBÓKLEMON CURD

OSTAHORN

👛