Veitingar við útför Elísabetar drottningar – nokkrar hugmyndir
Kórónan sem hvílir á kistu Elísabetar tilheyrir krúnudjásnum breska konungdæmisins og var gerð árið 1937 í tilefni af krýningu Georgs VI. Var hún hönnuð af Garrard og co. Gerðar voru á henni breytingar fyrir krýningu Elísabetar II árið 1953 og kórónan lækkuð um 25 mm til að gera hana kvenlegri og minnkuð til að henta höfuðlagi drottningar. Þegar konungdæmið var endurvakið 1660 var búin til ný kóróna fyrir Charles II. Um tíu gerðir af þessari kórónu hafa verið notaðar síðan. Kórónan er skreytt 2901 eðalsteinum þar á meðal Cullinan II demantinum, Safír St. Edwards, Stúart-safírnum og „Black Prince´s“ rúbíninum, nánar tiltekið 2,868 demöntum, 273 perlum, 17 safírum, 11 smarögðum og fimm rúbínsteinum, auk þess purpurablátt flauel, marðarskinn, gull silfur og hvítagull. Hún vegur 1.06 kg og er 31.5 cm að hæð. Kórónan er borin þegar þjóðhöfðinginn fer frá Westminster Abbey eftir krýningu og við setningu þingsins. Einungis þrír mega snerta kórónuna. Þjóðhöfðinginn, Erkibiskupinn af Kantaraborg við krýningarathafnir og umsjónarmaður krúnudjásnanna sem jafnframt gætir þeirra þegar þau fara úr the Tower of London við opinberar athafnir en þar eru þau einnig varðveitt milli athafna. REC.
Royalistar heimsins munu að sjálfsögðu fylgjast með útför Elísabetar drottningar á mánudaginn. það er ekki annað að heyra en fólk ætli að koma saman með veitingar og njóta þeirra á meðan á útsendingunni stendur.
Elísabet sendi Eisenhower forseta Bandaríkjanna þessa lummuuppskrift eftir heimsókn forsetahjónanna til Bretlands árið 1960. MEIRA HÉR.
Víða um land gerði fólk sér dagamun og fylgdist með útför drottningar og oftar en ekki voru veitingar í hennar anda eins og sjá má á myndunum hér að neðan.
Beituskúrinn í Neskaupstað - besta fiskipanna á landinu. Hákon Hildibrand í Neskaupstað er hvergi banginn - hann lætur verkin tala. Fyrir nokkrum árum breytti Hákon og fjölskylda gamla kaupfélagshúsinu í bænum í Hótel Hildibrand. Síðasta sumar opnuðu þau veitingastað í nýuppgerðum beitningaskúr, í flæðarmálinu í miðjum bænum. Það er ánægjulegt að sjá hvernig gamall andi skúrsins er allt um kring og fjölmörg áhöld og annað sem var í skúrnum er notað sem skraut.
Saveurs & Nature. Mæðradagurinn er á sunnudaginn. Það er kjörið að færa mæðrum þessa lands extra gott súkkulaði í tilefni dagsins. Síðustu vikur hef ég hámað í mig....
Kínóa- og grænmetissúpa. Margrét Jónsdóttir eigandi ferðaskrifstofunnar Mundo bauð til veislu á dögunum, fyrst var þessi súpa frá Perú þá íranskur kjúklingaréttur og loks ...mangóeftirréttur. Allt ómótstæðiega gott.
Mikið lifandis ósköp fer kínóa vel í maga, svo skemmir það nú ekki upplifunina að kínóa er bráðhollt. Þessi dásemdarsúpa er jafnvel ennbetri daginn eftir.