![Þorskhnakkar í sinnepskremi með kartöflumús HjarðardalUR Ytri í Önundarfirði önundarfjörður dúi sigga júlla fiskur þorskur fisherman](https://i0.wp.com/alberteldar.is/wp-content/uploads/2021/03/FAAA9945-5622-4345-A78B-01AF0830C11C.jpeg?resize=696%2C537&ssl=1)
Þorskhnakkar í sinnepskremi með kartöflumús
Á bænum Hjarðardal Ytri í Önundarfirði búa hjónin Sigríður Júlía Brynleifsdóttir skógfræðingur og Steinþór Bjarni Kristjánsson bóndi og skrifstofustjóri, af flestum eru þau betur þekkt sem Sigga Júlla og Dúi. Sparifiskurinn heimilisins eru þorskhnakkar í sinnepskremi með kartöflumús. Uppskrift sem Dúi sá í Mogganum snemma á öldinni og sá strax að þetta væri eitthvað 😊
— STEIKTUR FISKUR — ÖNUNDARFJÖRÐUR —
.
Steiktur fiskur í sinnepskremi
1 kg Fisherman þorskhnakkar
Veltið upp úr hveiti, steikið í smjöri og smá olíu á pönnu, setjið þá í ofn þar til það er eldað í gegn.
Sinnepskrem:
½ lítri rjómi
4 msk Dijon sinnep
2 msk hlynssýróp
1 kjúklingateningur
Salt og pipar eftir smekk
Soðið niður um 1/3 við vægan hita
Kartöflumús:
5 bökunarkartöflur, bakaðar í ofni
3 msk brætt smjör,
5 hvítlauksrif
2 greinar ferskt rósmarín
1 tsk þurrkað timjan
Salt og pipar eftir smekk
Bakið kartöflurnar í ofni á hefðbundin hátt, smjör, hvítlaukur og krydd brædd saman og kartöflurnar stappaðar útí.
![](https://i0.wp.com/alberteldar.is/wp-content/uploads/2021/03/37FE10EE-06F4-42E5-B8AE-ABF45F2BCB55.jpeg?resize=696%2C486&ssl=1)
.
— STEIKTUR FISKUR — ÖNUNDARFJÖRÐUR —
.