Indverskur Punjabi kjúklingur. Áhugavert að prófa rétti frá fjarlægum löndum, þeir sem vilja sterkan mat mega gjarnan bæta við kryddi. Kjúklingarétturinn er ægigóður og alls ekki sterkur.
Indverskur Punjabi kjúklingur
6 kjúklingabringur
1 stór laukur
3 msk góð olía
4 tómatar, saxaðir
2 hvítlauksrif
2 tsk rifinn engifer
chili
1 tsk kóriander
1 tsk túrmerik
salt og svartur pipar
2 lárviðarlauf
1/2 tsk kardimommur
1 tsk kanill
1 ds kotasæla
2 bananar
Brúnið kjúklingalærin í olíunni og setjið þau í eldfast form, saxið laukinn og steikið á pönnunni, bætið við öllu kryddinu og loks kotasælunni. Látið sjóða stutta stund, hellið yfir kjúklingalærin og steikið í 175° heitum ofni í um 45 mín, skerið bananana í sneiðar og stráið yfir réttinn áður en hann er borinn fram.
Berið fram með hrísgrjónum
Takk fyrir frábæra rétti, þessi er afar ljúffengur. Áttu nokkuð góða uppskrift af gæsabringum?
Comments are closed.