Blómkáls Bhaji – indverskur grænmetisréttur

Blómkáls Bhaji karrý indland indverskur matur
Blómkáls Bhaji – indverskur grænmetisréttur

Blómkáls Bhaji – indverskur grænmetisréttur

Mjög góður indverskur réttur. Þó í uppskriftinni komi fram að sjóða skuli grænmetið skellti ég þessu fyrst á pönnuna og síðan í ofninn í tæpa klst.

INDLAND

.

Blómkáls Bhaji – indverskur grænmetisréttur

2 laukar

2 msk góð olía

1 tsk cumin

2 hvítlauksrif

chili

1 tsk túrmerik

2 msk kóriander, saxað

1 stórt blómkálshöfuð

500 g kartöflur, skornar í bita

2/3 b vatn

3/4 b hrein jógúrt

2 b frosnar grænar baunir

2 msk garam masala (má líka nota karrý í staðinn)

Saxið laukinn og steikið á pönnu, bætið við hvítlauk og cummini og vatni. Takið blómkálið í sundur (ekki of smátt) og bætið við ásamt kartöflunum. Látið sjóða í stutta stund. Bætið saman við kóriander, túrmerik, chili og jógúrt. Látið sjóða þangað til grænmetið er mjúkt, bætið við grænum baunum í restina, þegar þær eru mjúkar er rétturinn tilbúinn.

INDLAND

.

Auglýsing

Meira úr sama flokki

Vöfflur – klassísk uppskrift úr bókinni Við matreiðum

Vöfflur. Fátt er dásamlegra en ilmur af nýbökuðum vöfflum. Það er einhver óútskýrð hlýja sem fylgir þeim. Hér er uppskrif úr hinni ágætu bók Við matreiðum, bók sem ég eignaðist fyrir 35 árum og fletti reglulega upp í. Við matreiðum er hin fínasta bók, hún kom fyrst út árið 1976 og nýlega kom sjötta útgáfan út.

Peruterta, þessi gamla góða

20160830_152036

Peruterta. Í minningunni voru perutertur í öllum barnaafmælum og flestum fermingarveislum í mínu ungdæmi. Botnarnar voru mjúkir og gegnblautir. Þegar ég sá á fasbókinni að Borghildur Jóna var að baka eina slíka fyrir afmæli sonar síns, fékk ég fortíðarþráhyggjukast og bað hana um mynd og uppskrift. Ég bara stóðst ekki mátið.

Hjónabandssæla

Hjónabandssæla

Mjúk og góð hjónabandssæla er góð með kaffinu. Stundum verða hjónabandssælur seigar, kannski vegna þess að þær eru bakaðar of lengi. En eflaust líkar einhverjum að hafa þær seigar.

Fyrri færsla
Næsta færsla