Servíettur – hvernig skal nota þær og hvað er óæskilegt

Góðir borðsiðir: hvenær á servíettan að fara í kjöltuna, hvernig notum við hana og hvað ber að forðast?

0
Auglýsing

Servíettur - pentudúkar munnþurrka hvernig skal nota þær og hvað er óæskilegt Hildur Berglind Oddur júlíusson Hafdís Helga helgadóttir Elma Stefanía Þorleifur Einarsson borðsiðir kurteisi napkin mannasiðir manners
Prúðbúnir nýútskrifaðir leiklistarnemar: Hafdís Helga, Oddur, Elma Stefanía, Þorleifur og Hildur Berglind

Servíettur – hvernig skal nota þær og hvað er óæskilegt

Servíettur eru líka nefndar munnþurrkur og í gamla daga heyrðist orðið pentudúkur. Þær eru ekki aðeins fallegt skraut á borði heldur hluti af góðum borðsiðum. Rétt notkun servíettu er einföld, látlaus og þægileg fyrir alla við borðið.

Auglýsing

Þegar við erum sest til borðs, og áður en maturinn er borinn fram, tökum við servíettuna varlega úr brotunum og leggjum hana í kjöltuna. Stóra servíettu má leggja tvöfalda í kjöltuna, en litla servíettu má hafa óbrotna. Það er óþarfi að hrista hana úr brotunum með tilþrifum.

Ef servíettan er í servíettuhring leggjum við hringinn fyrir ofan gafflana, eða fyrir ofan diskinn vinstra megin við glösin, eftir að servíettan hefur verið tekin úr honum.

Servíettan er notuð til að þerra munninn létt, ekki til að nudda eða þurrka af krafti frá einni hlið til annarrar. Hún er heldur ekki vasaklútur og á ekki að nota hana til að þurrka nef, borðbúnað eða annað sem henni er ekki ætlað.

Almenna reglan er að servíettan sé í kjöltunni meðan á máltíð stendur. Hún fer aðeins í hálsmálið við sérstakar aðstæður, til dæmis ef maturinn getur skvettst eða ef beita þarf afli, eins og þegar humarhali er brotinn.

Ef eitthvað fer niður á dúkinn má grípa servíettuna til að bjarga málum og biðja síðan um nýja. Ef við þurfum að bregða okkur frá borði leggjum við servíettuna á stólinn, stólarminn eða stólbakið og ýtum stólnum að borðinu. Það gefur til kynna að við komum aftur.

Þegar máltíðinni er lokið leggjum við servíettuna snyrtilega vinstra megin við diskinn, eða þar sem diskurinn var. Það er merki um að við séum búin að borða.

Og að lokum: best er að gæta þess að varalitur, sósur eða annað skilji ekki eftir sig óþarfa ummerki í servíettunni. Látlaus og snyrtileg notkun er alltaf fallegust.

— SERVÍETTURBORÐSIÐIRDÚKARÍSBRJÓTARMATARBOÐ UNDIRBÚIÐSKÁLAÐ

.

Servíettur - hvernig skal nota þær og hvað er óæskilegt Oddur Júlíusson
Fallega brotin servíetta gleður augað

Fleira áhugavert:

–  Heill kjúklingur í ofni  — Draumaterta dásamlega góð   – Riz à l’amande eftirréttur  – Vöfflur hin klassíska uppskrift   —  Skúffukaka sem klikkar ekki –  Hvað er kurteisi?   —  Snúðakakan góða   –  Kryddbrauð mömmu  – 

Fyrri færslaTíu mest skoðuðu borðsiðafærslurnar
Næsta færslaTíu vinsælustu uppskriftirnar 2016