Matarboð hjá Gunnari og Helenu
Heiðurshjónin Gunnar Bjarnason og Helena Steinarsdóttir héldu matarboð og buðu nokkrum vinum sínum. Gunnar var í sveit heima í fjölmörg ár og stóð sig með stakri prýði enda hvers manns hugljúfi, vandvirkur og hörkuduglegur. Hann sér að mestu um matseldina á heimilinu en Helena bakar. Þau hjónin hafa áður komið við sögu hér, það var þegar þau bjuggu í Tyrklandi
#2017Gestabloggari 25/52 — GUNNAR BJARNASON — HUMAR – BERNAISE — SÚKKULAÐITERTUR — TYRKLAND —
.
Humarsúpa
500 g humar í skel
fiskikraftur (ca 4 teningar)
3 gulrætur
2 hvítlauksrif
hvítur pipar
2 sellerístilkar
steinseljustönglar
½ sítróna
10 svört piparkorn
2 msk tómatpuré
1 kjúklingakraftur
2,5 ltr vatn
1 laukur
1 paprika
Þeyttur rjómi
Skelflettið humarinn og setjið humarinn (kjötið) til hliðar.
Kryddið humarskeljarnar með smá paprikukryddi og bakið í ofni við 200°C í ca 20 mín,
Skerið grænmetið gróft niður og steikið í pottinum.
Bætið vatni og skeljunum útí. Kreistið sítrónusafann saman við og sjóðið sítrónuna með.
Látið malla í minnst 3 tíma en ég byrja yfirleitt á því daginn áður, sýð í tvo tíma og læt það standa í pottinum yfir nótt og held svo áfram að sjóða í 2-3 tíma í viðbót.
Sigtið frá og geymið.
Þykkið með smjörbollu, smakkið til með salti, pipar, rjóma og fiskikrafti.
1-2 humarhalar settir í skál, súpunni bætt útí og allt látið bíða í nokkrar mín.
Þeyttur rjómi og steinselja sett til skrauts.
Nautalund Sous-vide
1 nautlaund skorin í skammtastærðir
Vacuumpakkið með rósmarínstöngli, smjörklípu og pipar.
Sous-vide-ið lundina í 2,5 klst við 53°. Að því loknu var hún tekin úr pakkningunni, þerruð og lokað á grilli við háan hita og salti bætt við.
Gulrætur í ofni
Ca. 2 gulrætur á mann. Skornar til hálfs eftir endilöngu.
1 msk balsamikedik
1 msk soya sósa
1 msk hlynsíróp
Blandað saman og penslað á gulræturnar.
Bakið í ofni við 175°C í ca 40-50 mínútur eða þangað þær eru tilbúnar.
Victoría, dóttir Gunnars og Helenu, sá um salatið með nautasteikinni, það samanstóð af lambhagasalati, tómötum, vínberjum og jarðarberjum. Öllu blandað saman í salatskál.
Bernaise sósa
12 eggjarauður
500 gr smjör.
Essence (sjá hér að neðan)
1 msk estragon
salt og pipar.
Bernaise essence
150 ml rauðvínsedik
150 ml hvítvínsedik
2 greinar estragon
10 piparkorn
1 skallot laukur
1 rauður chillipipar.
Bernaise essence: Skerið laukinn smátt og chilli eftir endilöngu. Blandið öllu saman í lítinn pott og látið sjóða niður þar til ca. 2-3 msk eru eftir af vökva í pottinum. Þetta er líklegast óvinsælasta aðgerðin á heimilinu þar sem lyktin sem stígur upp fer ekki framhjá neinum.
Bernaise sósa: Bræðið smjörið við lágan hita. Stífþeytið eggjarauðurnar með handþeytara.
Áður en smjörið fer útí þá blanda ég essenceinum hrært varlega útí eggjarauðurnar. Þegar smjörið er brætt þá verður að passa að það sé ekki of heitt, og því blandað varlega saman við eggjarauðurnar og hrært með písk á meðan. Ég nota ekki „hvitu kornin“ sem verða eftir neðst.
Estragon skorið smátt og bætt útí, smakkað til með salti og pipar. Ég ber hana fram kalda eða svo gott sem kalda.
Gunnar og Helena bjuggu í tvö ár í Tyrklandi, um tíma þar voru þau hvorki með hrærivél né handþeytara. Helena dó ekki ráðalaus þegar fjölskyldunni langaði í tertu, hún fór á netið og fann tertu sem hvorki þurfti að hræra né þeyta. Aðeins bræða í potti, blanda saman og baka. Einföld snilld
Súkkulaðiterta í potti
130 gr mjólkursúkkulaði
130 gr dökkt súkkulaði
180 gr smjör
2 tsk neskaffi, þetta fer svolítið eftir stemmningunni hverju sinni. Stundum meira kaffi, stundum minna. Stundum ekki neitt.
2 dl sykur
4 egg
2 tsk vanillusykur
1/2 tsk lyftiduft
1/2 dl. hveiti.
Brjótið súkkulaðið niður og bræðið við vægan hita ásamt smjörinu og hrærið í á meðan með písk. Takið pottinn af hellunni og látið kólna í smá stund. Á meðan er neskaffið mulið í morteli mjög smátt og bætt útí pottinn ásamt sykrinum og eggjunum. Hrærið vel saman með písk þar til blandan er orðin slétt.
Blandið saman við hveiti, vanillusykri og lyftidufti. Pískið saman þangað til að blandan er orðin slétt.
Hitið ofninn í 175°C. 24 cm bökunarform er smurt að innan með smjöri og bökunarpappír er settur í botninn.
Hellið deiginu ofan í bökunarformið og bakið í ca. 45-50 mínútur eða þangað til að það hættir að heyrst “bubbluhljóð” þegar maður leggur kökuna uppað eyranu, án þess að brenna sig þó en muna að fylgjast með vel kökunni þar sem hún má vera blaut í miðjunni.
Kremið
70 gr dökkt súkkulaði
70 gr mjólkursúkkulaði
1 msk smjör
1 msk mjólk.
Setjið allt í pott og bræið saman við lágan hita – þar til það er búið að ná réttri þykkt á kremið, stundum meiri mjólk eða minni, allt fer eftir hvað maður vill hafa kremið þykkt. það má setja á kökuna þótt hún sé ennþá heit.
Ef svo ólíklega vill til að það sé eitthvað eftir af kökunni þá er hún alveg virkilega góð “daginn eftir” kaka.
Gestir í boðinu voru auk okkar Bergþórs, Herdís Steinarsdóttir Jakob Líndal Jóhannesson og Guðrún Greta Baldvinsdóttir.
–
#2017Gestabloggari 25/52 — GUNNAR BJARNASON — HUMAR – BERNAISE — SÚKKULAÐITERTUR — TYRKLAND —
— MATARBOÐ HJÁ GUNNARI OG HELENU —
–