Ítölsk eplakaka
„Alger uppáhalds kaka hér á heimilinu og kemur úr gríðarmiklum doðranti, Italian Cooking Encyclopedia, sem ég keypti fyrir lifandi löngu í Bretlandi.” segir Súsanna Svavarsdóttir sem sendi mér uppskrifina. Einstaklega ljúf og bragðgóð terta sem á alltaf við og ég skil vel hvers vegna er í upphaldi hjá Súsönnu og fjölskyldu. Takk fyrir 🙂
— EPLATERTUR — EPLI — ÍTALÍA —
.
Ítölsk eplakaka
3 stór epli
Safi og fínt rifinn börkur úr einni sítrónu
4 egg
150 g sykur (2/3 b)
150 g hveiti (1 1/3b)
1 tsk lyftiduft
1/3 tsk salt
115 g bráðið og kælt smjör
Smyrjið ca. 23 cm form með lausum botni með smjöri. Getur líka við gott að setja smjörpappír í botninn. Skerið hvert epli í fjóra bita, skrælið og hreinsið kjarnana úr þeim. Sneiðið síðan í þunnar skífur og setjið í skál, hellið sítrónusafa og berki yfir. Þeytið saman egg og sykur þar til blandan er orðin vel þykk. Setjið hveiti og lyftiduft saman við eggjahræruna. Hellið smjörinu saman við. Bætið eplunum út í og blandið vel. Hellið í formið og jafnið yfirborðið vel. Bakið við 180°C í 40 mín. Fallegt að skreyta, t.d. fínt skræluðum sítrónuberki og með því að sigta smá flórsykur yfir.
— EPLATERTUR — EPLI — ÍTALÍA —
🇮🇹