Verðlaunasmákökurnar í smákökusamkeppni Kornax 2019

Verðlaunasmákökurnar í smákökusamkeppni Kornax 2019 Albert, Helga Beck, Carola Ida Köhler og Sylvía Haukdal jólabakstur jólasmákökur smákökur smákökubakstur jól jólin Mæru-lyst. Höfundur: Guðný Jónsdóttir Í þriðja sæti varð Pistasíudraumur með mjúkkri mandarínu- og karamellufyllingu. Höfundar Karen Lind Hilmarsdóttir og Snorri Victor Gylfason 2. sæti: Kókoskransar með ástaraldinfyllingu. Höfundur: Hildur Margrét Ægisdóttir
Verðlaunasmákökurnar 2019. F.v. Pistasíudraumur, Mæru-lyst og Kókoskransar

Árlega heldur Kornax smákökusamkeppni

Mikill metnaður er í keppninni og greinilegt að áhugi á smákökubakstri minnkar ekki. Að þessu sinni bárust vel á annað hundrað tegundir og dómnefndin valdi úr þeim tuttugu til frekari smökkunar. Allar voru kökurnar góðar. HÉR má sjá síðustu keppnir

1. sæti: Mæru-lyst. Höfundur: Guðný Jónsdóttir

Mæru-lyst

150 g lint smjör
100 g dökkur púðursykur
100 g hrásykur
1 egg
200 g Kornax hveiti
1 tsk vínsteins lyftiduft
1 tsk matarsódi
1 tsk vanilludropar
2 tsk gróft malað hafsalt
rifinn börkur af einni appelsínu
150 g Síríus karamellukurl.

Hrærið smjör, púðursykur og hrásykur vel saman.
Bætið við eggi, appelsínuberki og vanilludropum og hrærið vel.
Sigtið saman hveiti, vínsteins lyftiduft og matarsóda og bætið við ásamt karamellukurli og hafsalti og hrærið varlega saman við.

Setjið á bökunarplötu með lítilli teskeið, kökurnar renna dálítið út. Bakið við 180°C í 7-10 mín.

Skraut ofan á:
1 poki hvítir súkkulaðidropar (um 150 g) og ca 75 g Síríus karamellukurl.
Bræðið súkkulaðidropana í vatnsbaði og setjið yfir kökurnar. Stráið karamellukurli yfir. „Annars er það auðvitað smekksatriði hvað hver og einn vill. Mér finnst þær líka ágætar eintómar án skrauts 🙂 ”

2. sæti: Kókoskransar með ástaraldinfyllingu. Höfundur: Hildur Margrét Ægisdóttir

Kókoskransar með ástaraldinfyllingu

Kókossmákökur:
100 g Kornax hveiti
100 g kókosmjöl
75 g sykur
100 g lint smjör
1/2 egg
Bland þurrefnum saman og hrærið. Bætið smjöri og eggi út í og látið hnoðast aðeins í hrærivélinni. Nú þarf að hafa allar kökurnar með eins lögun, ég notaði botninn á non-stick muffins-formum í bakka. Fletjið þær snyrtilega út í botninu, ca 10 g af deigi í hvert form. Fyrir helminginn þarf svo að skera út miðjuna – ég notaði ca 1,5 cm í þvermál, vel hreinsað tússpennalok.
Bakið kökurnar við 180°C í ca 3 mín eða þar til brúnirnar eru farnar að dekkjast. Þær eiga svo að losna auðveldlega úr formunum ef slegið er létt á botninn. Kælið í ísskáp

Ástaraldinfylling:
Aldinkjöt með fræjum úr 3-4 ástaraldinum
1 tsk sítrónusafi
1/2 tsk smjör
1 egg
110 g sykur
Setjið öll hráefnin saman í skál, hrærið létt og setjið skálina yfir sjóðandi vatn, látið malla á lágum til meðalhita meðan smákökurnar eru útbúnar. Hrærið í við og við. Blandan á að þykkjast töluvert. Látið kólna í ísskáp.

skreyting:
150 g hvítir súkkulaðidropar frá Nóa Síríus
smá kókosmjöl
Bræðið súkkulaðið í skál yfir heitu vatni. Dýfið sléttu hliðinni á kókoskökunni með útskornu miðjunni í súkkulaðið og dreifið örlitlu kókosmjöli yfir. Kælið í ísskáp. Smyrjið hrjúfu hliðina á heilu kókoskökunni með þykku lagi af ástarfyllingunni. Búið svo til samloku sbr. mynd að neðan.

Í þriðja sæti varð Pistasíudraumur með mjúkkri mandarínu- og karamellufyllingu. Höfundar Karen Lind Hilmarsdóttir og Snorri Victor Gylfason

Pistasíudraumur með mjúkkri mandarínu- og karamellufyllingu

Pistasíudraumur:
250 g smjör við stofuhita
250 g sykur
325 g Kornax hveiti
1 egg
150 g muldar pistasíur

Þeytið smjör og sykur saman þar til er létt og ljóst.
Bætið við egginu og þeytið þar til allet er vel blandað saman
Bætið við hveitinu hægt og rólega saman við.
Látið loks pistasíur og blandið vel saman.

Bakið litlar smákökur við 200°C í 7-9 mín.

Mandarínujello:
100 g mandarínusafi
20 g sykur
1 1/2 matarlímsblað
2 tsk sítrónusafi
börkur af einni mandarínu

Leggið matarlímið í kalt vatnsbað og leyfið því að standa í 5 mín.
Sjóðið saman mandarínusafa, sykur, sítrónusafa og sítrónubörk.
Þegar það er búið að sjóða í eina mínútu, kreistið vatnið úr matarlíminu og hrærið saman við blönduna.
Hellið blöndunni yfir bakka, með jöfnu þunnu lagi og kælið. Skerið út þá stærð og gerð sem óskað er eftir að fá á smákökurnar.

Karamellufylling:
75 g karamellukurl frá Nóa Síríus
75 g Rjómasúkkulaðidropar frá Nóa Síríus
40 g rjómi

Bræðið saman karamellukurlið og rjómasúkkulaðið saman yfir heitu vatnsbaði, bætið svo við rjómanum og blandið vel saman. Kælið í 10-15 mínútur áður en þið mótið fyllinguna.

SJÁ EINNIG: KORNAXSMÁKÖKURJÓLAUPPSKRIFTR

Tuttugu smákökutegundir komust í lokaúrslit
Dómnefndin: Albert, Helga Beck, Carola Ida Köhler og Sylvía Haukdal
Auglýsing

Meira úr sama flokki

Vöfflur – klassísk uppskrift úr bókinni Við matreiðum

Vöfflur. Fátt er dásamlegra en ilmur af nýbökuðum vöfflum. Það er einhver óútskýrð hlýja sem fylgir þeim. Hér er uppskrif úr hinni ágætu bók Við matreiðum, bók sem ég eignaðist fyrir 35 árum og fletti reglulega upp í. Við matreiðum er hin fínasta bók, hún kom fyrst út árið 1976 og nýlega kom sjötta útgáfan út.

Peruterta, þessi gamla góða

20160830_152036

Peruterta. Í minningunni voru perutertur í öllum barnaafmælum og flestum fermingarveislum í mínu ungdæmi. Botnarnar voru mjúkir og gegnblautir. Þegar ég sá á fasbókinni að Borghildur Jóna var að baka eina slíka fyrir afmæli sonar síns, fékk ég fortíðarþráhyggjukast og bað hana um mynd og uppskrift. Ég bara stóðst ekki mátið.

Hjónabandssæla

Hjónabandssæla

Mjúk og góð hjónabandssæla er góð með kaffinu. Stundum verða hjónabandssælur seigar, kannski vegna þess að þær eru bakaðar of lengi. En eflaust líkar einhverjum að hafa þær seigar.