
Orkustykki með hnetum, fræjum og trönuberjum
Þessi orkustykki er einfalt að útbúa og þau eru stútfull af góðum hráefnum. Möndlur, kasjúhnetur, fræ, kókos og trönuber gefa þeim bæði gott bragð og skemmtilega áferð. Orkustykkin eru tilvalin sem millimál, í nestisboxið, eftir æfingar eða með kaffibollanum. Ef þú skerð þau ekki í stykki má einnig nota blönduna sem ljúffengt granóla með jógúrti eða skyrinu.
— Orkustykki – FJALLGANGA — HREYFING — ORKA — Trönuber —
.
Bestu orkustykki með hnetum, fræjum og trönuberjum
1 bolli möndlur
1 bolli kasjúhnetur
1/4 bolli graskersfræ
1/4 bolli sólblómafræ
1/4 bolli hörfræ
1/4 bolli trönuber
1/2 bolli kókosflögur
1/4 bolli kókosolía
1/2 bolli hunang
1 tsk. vanilludropar eða vanilluduft
1 tsk. gott salt
Setjið möndlur, kasjúhnetur og kókosflögur í matvinnsluvél og látið vélina ganga örstutt, aðeins nokkra hringi. Blandan á að vera grófsöxuð, ekki fínmöluð. Setjið hana í skál.
Hitið kókosolíu, hunang og vanillu örlítið saman, til dæmis í örbylgjuofni eða potti, og hrærið þar til blandan verður mjúk. Hellið henni yfir hnetublönduna.
Bætið fræjum, trönuberjum og salti út í og hrærið vel saman. Setjið blönduna á bökunarplötu klædda bökunarpappír og þrýstið henni vel niður svo hún verði þétt og jöfn.
Bakið við 180°C í 20–25 mínútur. Fylgist vel með bakstrinum, því orkustykkin eiga ekki að dökkna of mikið og ofnar eru misjafnir. Látið kólna í um 20 mínútur áður en skorið er í stykki eða brotið niður.
Einnig má mylja blönduna og nota sem granóla. Það er sérlega gott að bræða dökkt súkkulaði yfir og strá kókosflögum ofan á.
Bestu orkustykkin með hnetum, fræjum og trönuberjum
Fleira áhugavert:
– Marokkóskur saltfiskur með engifer og saffran – Sítrónukjúklingur – Heill kjúklingur í ofni — Draumaterta dásamlega góð – Riz à l’amande eftirréttur – Vöfflur hin klassíska uppskrift — Saltfiskbollur frá Portúgal – Hvað er kurteisi? — Snúðakakan góða – Skyrterta Maríu –
