Páll Bergþórsson – kveðjustund
Hér eru nokkrar myndir, flestar teknar á ferðalögum okkar Bergþórs og Páls um landið. Minningargrein um Pál er neðst.
.
Páll Bergþórsson – kveðjustund
Brennandi áhugi, nýjungagirni, síkvikur hugur, frásagnargáfa, vandvirkni og þrautseigja eru orð sem koma upp í hugann við fráfall tengdaföður míns.
Páll hikaði ekki við að hugsa fræðin upp á nýtt á mörgum sviðum, þó að ekki hafi alltaf þótt vit í því til að byrja með, enda er í eðli mannskepnunnar að vera fastheldin á hlutina eins og þeir hafa alltaf verið. Þótt stormurinn gæti verið í fangið, stóð Páll alltaf keikur með sínum vel ígrunduðu rannsóknum og tilgátum út frá þeim. En um leið var hann fyrst og fremst mannvinur og friðarsinni með stórt hjarta og ríka réttlætiskennd.
Í mörg ár hefur Páll komið með okkur á aðfangadagsmorgun til að afhenda vinum og kunningjum lítinn heimagerðan jólaglaðning. Á hverju ári samdi hann nýja vísu með jólakveðju og upplýsingum um innihaldið. Skemmtilegast var að heyra hann lesa vísuna á hverjum stað. Hvarvetna var Páll aufúsugestur hvort sem var í eigin persónu eða á skjánum, enda háttvís maður svo af bar, fyrir utan leiftrandi gáfurnar. Hann kunni þá list að sýna öllum virðingu og áhuga.
Ógleymanlegar eru ferðirnar um Ísland þar sem hann jós af fróðleiksbrunni sínum. Alltaf var tölvan meðferðis og eldsnemma á hverjum morgni sat hann niðursokkinn í tvo tíma og samdi veðurspá eftir gögnum utan úr heimi. Veðurspána kallaði Páll tídægru og birti að gamni sínu á fasbókinni eins og hann kaus að kalla Facebook.
Sumarið 2020 gerðumst við Bergþór og Páll ferðabloggarar, fórum vítt og breitt um landið og þá voru ómissandi fróðleiksmolar hans um landa- og jarðfræði, búskaparhætti og veðurfar. Að auki virtist hann kunna hverja einustu lausavísu sem hann hafði heyrt um ævina. Fjölbreyttir matsölustaðir voru prófaðir og alltaf var Páll tilbúinn að smakka eitthvað sem hann hafði ekki komist í kynni við áður, hvort sem það var indverskur matur, frumlegar pitsur eða annað. Eftir að hafa borðað á marokkóskum stað á Siglufirði fór hann í eldhúsið og sagði kokkinum að þetta væri besti matur sem hann hefði á allri sinni ævi smakkað.
Við sem erum úr sveit vitum að veðrið skiptir miklu máli. Í mínum uppvexti var sem heilög stund þegar Páll sagði veðurfréttir í Sjónvarpinu. Hann hafði lag á að tengja veðrið við lífið í landinu, á auðugu og fallegu mannamáli, þannig að á var hlustað. Alltaf elegant með slaufuna og bylgjurnar fínu í hárinu.
Með þakklæti í huga er komið að kveðjustund, aldarfjórðungs einstaklega ánægjuleg kynni. Hlýja Páls, góðvild, brennandi áhugi á því sem hann tók sér fyrir hendur verður okkur samferðafólkinu til eftirbreytni. Þannig á að lifa lífinu, – lifandi -, af brennandi áhuga.
Yndi á ævivegi
eru vinafundir.
Því er vert að þakka
þessar góðu stundir,
sjá á sælum degi
sól í heiði skína,
fylla lífið fegurð,
færa blessun sína.
Undur er að lifa,
eiga daga bjarta,
hafa verk að vinna,
von og gleði í hjarta,
ljóð og söng í sinni,
sumardýrð og ljóma,
ævilangan unað,
allra hylli og sóma.
P.B.
Blessuð sé minning Páls Bergþórssonar.