
Brieostur með fíkjum og pekanhnetum
Brieostur með fíkjum og pekanhnetum er einfaldur en einstaklega glæsilegur réttur sem hentar jafnt í veislur, saumaklúbba, jólaboð og notaleg kvöld með vinum. Sætan úr fíkjunum, stökkar pekanhneturnar og mildur, rjómalagaður brieosturinn mynda fullkomið jafnvægi bragða.
Þessi uppskrift er auðveld í undirbúningi og má gera á undan tíma. Fíkjurnar eru soðnar með hlynsírópi og pekanhnetum þar til úr verður ljúffengt álegg sem passar einstaklega vel með ostinum. Berið fram með góðu saltkexi, snittubrauði eða þunnum sneiðum af góðri pylsu og þið eruð komin með veislurétt sem vekur alltaf athygli.
— FÍKJUR — PEKANHNETUR — BAKAÐUR OSTUR — PÁLÍNUBOÐ —
🧀
Brieostur með fíkjum og pekanhnetum
1 stór brieostur eða 3 litlir
500 g þurrkaðar fíkjur
300 g pekanhnetur, gróft saxaðar
1 dl vatn
2 msk hlynsíróp (maple síróp)
⅓ tsk salt
Aðferð
Skerið fíkjurnar í tvennt og leggið þær í bleyti í um 30 mínútur. Hellið vatninu af og setjið fíkjurnar í pott ásamt pekanhnetum, vatni, hlynsírópi og salti. Látið sjóða við vægan hita í um 10 mínútur. Kælið blönduna.
Setjið brieostinn á fat og dreifið fíkju- og pekanhnetublöndunni yfir. Berið fram með saltkexi, snittubrauði eða þunnum sneiðum af góðri pylsu.
🧀
Ég hef alltaf verið veikur fyrir góðum ostum og ef þessi uppskrift fellur í kramið mæli ég líka með að prófa bakaðan brieost með fíkjum, valhnetum og pistasíuhnetum. Það er annar ostaréttur sem hefur notið mikilla vinsælda hjá gestum okkar: BAKAÐUR OSTUR.
Hér á síðunni má einnig finna fjölmargar hugmyndir að ostabökkum, smáréttum og veislumat sem hentar bæði hversdags og hátíðlegum tilefnum: OSTUR
Fleira spennandi:
— Bananamúffur með döðlum og súkkulaði — Skúffukaka sem klikkar ekki – Draumaterta dásamlega góð – Hrísgrjónagrautur á laugardegi – Vöfflur hin klassíska uppskrift – Soðin egg — — Hægeldaðir lambaskankar — Steiktur fiskur í brúnni sósu og ávaxtagrautur með rjóma — Saltfiskur í ólífuolíu — Póstlistinn —
