Eggjalaust rabarbarapæ

Eggjalaust rabarbarapæ eggjalaust kaffimeðlæti pæ rabarbari rabbarbari chiafræ egg án eggja marsibil lúkas
Eggjalaust rabarbarapæ. Ef þið þekkið einhverja með eggjaofnæmi bendið þeim endilega á þessa einföldu aðferð.

Eggjalaust rabarbarapæ

Sumir segja að egg séu stórlega ofmetin í bakstri. Við útbjuggum rabarbarapæið góða án eggja. Í staðinn fyrir tvö egg notuðum við tvær matskeiðar af chia fræjum og 2/3 b af vatni (pískið saman í nokkrar mínútur þangað til þetta er orðið að þykkum graut). Ef þið þekkið einhverja með eggjaofnæmi bendið þeim endilega á þessa einföldu aðferð.

Á myndinni eru Lúkas og Marsibil

EGGJALAUSTRABARBARAPÆRABARBARI

.

Auglýsing

Meira úr sama flokki

Vöfflur – klassísk uppskrift úr bókinni Við matreiðum

Vöfflur. Fátt er dásamlegra en ilmur af nýbökuðum vöfflum. Það er einhver óútskýrð hlýja sem fylgir þeim. Hér er uppskrif úr hinni ágætu bók Við matreiðum, bók sem ég eignaðist fyrir 35 árum og fletti reglulega upp í. Við matreiðum er hin fínasta bók, hún kom fyrst út árið 1976 og nýlega kom sjötta útgáfan út.

Peruterta, þessi gamla góða

20160830_152036

Peruterta. Í minningunni voru perutertur í öllum barnaafmælum og flestum fermingarveislum í mínu ungdæmi. Botnarnar voru mjúkir og gegnblautir. Þegar ég sá á fasbókinni að Borghildur Jóna var að baka eina slíka fyrir afmæli sonar síns, fékk ég fortíðarþráhyggjukast og bað hana um mynd og uppskrift. Ég bara stóðst ekki mátið.

Hjónabandssæla

Hjónabandssæla

Mjúk og góð hjónabandssæla er góð með kaffinu. Stundum verða hjónabandssælur seigar, kannski vegna þess að þær eru bakaðar of lengi. En eflaust líkar einhverjum að hafa þær seigar.