Paxo/Campbellskjúklingur

Paxo/Campbellskjúklingur, kata Kolbeins, kjúklingur, Campbells kjúlli ÞÓRA KATRÍN KOLBEINS SPERGILKÁL campbell´s
Paxo/Campbellskjúklingur

Paxo/Campbellskjúklingur

Þessi uppskrit er frá Kötu vinkonu minni eins og svo margar góðar hér á síðunni. Upphaflega uppskriftin er frá konu sem núna er 88 ára gömul og er vinkona Kötu. Sú gerði hann fyrst um tvítugt, þannig að upphaflega uppskriftin er komin til ára sinna. Fyrir þá sem ekki vita þá var PAXO raspið fyrst framleitt árið 1901. Campbells súpurnar eru öllu eldri eða frá 1869

KATA KOLBEINSKJÚKLINGURRASPCAMPBELL´S

.

Paxo/Campbellskjúklingur

1-1 1/2 kjúklingur, eldaður

ca 600 g spergilkál

2 ds Campell’s kjúklingasúpa

1 msk mæjónes

1 tsk karrý

safi úr hálfri sítrónu

rifinn ostur

50 g smjör í bitum

1 pk Paxo stuffing mix sage and onion (fæst í Hagkaup)

Skerið spergilkálið niður í bita, hitið vatn að suðu og látið spergilkálið í það og sjóðið 4 mín. Hellið soðinu af. Smyrjið eldfast form með olíu. Setjið spergilkál neðst. Rífið kjúkling niður í höndunum og setjið ofan á. Blandið saman Campbells, mæjónesi, karrý og sítrónusafa – dreifið yfir og stráið rifinum ost þar yfir. Setja paxo raspið þar yfir. Setjið smjörið yfir og bakið í um 20 mín. Berið fram með brauði, hrísgrjónum og salati.

Paxo stuffing mix sage and onion (fæst í Hagkaup)
Spergilkál

KATA KOLBEINSKJÚKLINGURRASPCAMPBELL´S

.

Auglýsing

Meira úr sama flokki

Hóflega drukkið vín

Hóflega drukkið vín

Hóflega drukkið vín. Þeir sem kunna með vín að fara dreypa á því, ýmist með því að skála fyrir borðhald eða í léttvíni með matnum og drekka a.m.k. eitt vatnsglas á móti hverju glasi af léttvíni. Vörumst að svolgra í okkur víninu.

Brúskettur með tómat og basil

Brúskettur með tómat og basil. Sigurlaug Margrét Jónasdóttir hélt matarboð á dögunum, hún er gestgjafi af guðs náð. Ekki aðeins er hún snilldarkokkur, heldur verður andrúmsloftið létt og frjálslegt í kringum hana, þar sem allt virðist auðvelt og flest verður tilefni húmors og gjallandi hláturs.