Gamaldags hafrakex

Bragðgóð og stökk hafrakex – fullkomin með kaffinu eða osti

0
Auglýsing
Gamaldags hafrakex – stökkt en samt svo mjúkt, best með smjöri og osti. Þetta er ein af þessum klassísku uppskriftum sem eiga alltaf vel við

Gamaldags hafrakex

Gamaldags hafrakex eru ein af þessum uppskriftum sem vekja upp hlýjar minningar – ilmurinn úr eldhúsinu, brakandi kexið og smjörið sem bráðnar ofan á. Þetta er einfalt, traust og alveg ótrúlega gott með osti eða bara eitt og sér með kaffinu. Ég elska að baka svona klassík – uppskriftir sem hafa staðist tímans tönn og eru jafn góðar í dag og fyrir áratugum síðan.

Best er að leyfa kexinu að kólna aðeins áður en það er borið fram – þá verður það stökkara. Geymist vel í lokuðu boxi í nokkra daga (ef það klárast ekki strax!).

Auglýsing

HAFRAKEXBAKSTURKÖKURKLÚBBARÉTTIRBRAUÐKEX

.

Hafrakexkökur á leið í ofninn

GAMALDAGS HAFRAKEX

4 b haframjöl
2 b hveiti
1 b sykur (eða minna)
2 tsk lyftiduft
½ tsk matarsódi
½ tsk hjartarsalt
250 g smjör við stofuhita
1 b mjólk

Hrærið þurrefnin saman í skál. Blandið smjöri saman við, hnoðið og bætið mjólk út í smám saman. Deigið á að loða vel saman, en ekki að klessast á hendurnar.

Fletjið deigið út, sparið ekki hveiti á borðið. Skerið út kökur með bolla eða glasi. Stingið vel með gaffli. Bakið við 200°C með undir- og yfirhita u.þ.b. 13 mín., eða þar til kexið hefur fengið fallegan lit.

Gamaldags hafrakex – einföld gleði sem bragðast alltaf eins og heimili.

Fleira spennandi:

Hjónabandssælan Saltfiskur í ólífuolíu —  Ísafjörður —  Steikt andalæri —  Vöffluuppskrifin besta  —   Múffur með eplum og haframjöli — Veislukaffi á Akureyri — Borðsiðanámskeið —

Fyrri færslaÍsterta frá Kjörís
Næsta færslaBúkonan – gæða ólífuolíur frá Spáni