![ÖND ENDUR ANDAKJÖT ANDASTEIK Steikt andalæri ÚR DÓS andalæri í niðursuðudós steikt læri andafita](https://i0.wp.com/alberteldar.is/wp-content/uploads/2021/07/B7389639-9AA5-44BA-8543-A55BA7451061.jpeg?resize=640%2C480&ssl=1)
Steikt andalæri
Það er hægt að fá nokkrar gerðir af andalærum í stórum niðursuðudósum, oftast eru 4-5 læri í hverri dós. Aðferðin er einföld. Takið lærin úr dósinni með töng og raðið í form. Hellið ca 1 dl af fitunni yfir þau og bakið í 12-15 mínútur á 180°C. Yfirleitt þarf ekki að krydda. Það er upplagt að skera niður grænmeti, setja svolítið af andafitunni yfir og baka í ofni (lengur en lærin) og bera fram með salati og bláberjasultu. Geymið afganginn af andafitunni í ísskáp til síðari tíma.
— ENDUR — KJÖT — BLÁBERJASULTA —
.
![](https://i0.wp.com/alberteldar.is/wp-content/uploads/2021/07/79735362-EDA3-438C-A8C8-C8326309817C.jpeg?resize=640%2C480&ssl=1)
![](https://i0.wp.com/alberteldar.is/wp-content/uploads/2021/07/CFF458A3-89F3-4666-925E-4C7F77C13BE8.jpeg?resize=623%2C640&ssl=1)
.
— ENDUR — KJÖT — BLÁBERJASULTA —
.