Rababarabaka góðrar grannkonu
Bæjarstjórahjónin í Fjarðabyggð buðu Sætabrauðsdrengjunum í mat þegar hópurinn var á ferð um Austurland. Eftir dásamlegan silung var borin fram þessi einstaklega góða rabarbarabaka sem Hildur Ýr galdraði fram.
Kakan er einföld, heimilisleg og ilmar dásamlega af kanil. Sætur súkkulaðikeimur og súrleiki rabarbarans fara einstaklega vel saman og úr verður baka sem hentar jafnt með síðdegiskaffinu og sem eftirréttur í góðum gestaboðum.
— HILDUR ÝR — RABARBARI — NESKAUPSTAÐUR — SÆTABRAUÐSDRENGIRNIR —
.

Rababarabaka góðrar grannkonu
Rabarbarabaka góðrar grannkonu
Fylling
Rabarbari, skorinn í bita, þannig að hann hylji vel botninn á stóru eldföstu móti eða tveimur minni
2 tsk kanill
2 msk ljósir súkkulaðispænir
Deig
300 g hveiti
200 g púðursykur
100 g kókosmjöl
2 tsk vanillusykur
200 g smjör
Hitið ofninn í 180°C.
Hnoðið öllu hráefninu í deigið saman í skál þar til úr verður gróft deig.
Setjið rabarbarann í botninn á eldföstu móti. Stráið kanil og súkkulaðispænum yfir. Dreifið deiginu síðan jafnt yfir rabarbarann.
Bakið í 20–30 mínútur eða þar til bakan er gullin og falleg á yfirborðinu.
Berið fram volga með þeyttum rjóma, vanilluís eða jafnvel smá vanillusósu.


.
Fleira áhugavert:
– Rjómalöguð aspassúpa, einföld og hátíðleg — Fíladelfía, matarborgin — Grafinn lax og graflaxsósa — Rabarbarasulta — Humarveisla Önnu Rósu — Forsetaísinn — Skúffukakan besta — Sítrónu linguine Nigellu — Múffur með eplum og haframjöli — Döðlukonfekt, gott, gott — Mál og vog – helstu skammstafanir í uppskriftum —


