
Hátíðlegt meðlæti – bestu hugmyndirnar með veislumatnum
Hvað er hátíðlegt meðlæti?
Hátíðlegt meðlæti er meðlæti sem er borið fram með veislumat eins og lambakjöti, kalkúni eða nautasteik og gerir máltíðina bæði fallegri og bragðbetri. Algeng dæmi eru kartöflur, rauðkál, salöt og sæt meðlæti eins og rabarbarasulta.
Það er fátt sem getur gert góða máltíð að alvöru veislumat eins og vel valið meðlæti. Oft gleymist meðlætið svolítið í skipulaginu – en sannleikurinn er sá að það er það sem bindur allt saman og lyftir réttinum upp á næsta stig.
Hér eru mínar uppáhalds hugmyndir að hátíðlegu meðlæti – bæði klassískar og aðeins léttari og ferskari sem passa sérstaklega vel með veislumat, hvort sem það er lamb, kalkúnn eða fiskur.
— JÓLIN JÓLIN — ÍSLENSKT — MEÐLÆTI — PÁSKAR —
.
Gott að hafa í huga:
Ekki hafa of mörg meðlæti – 3–4 duga vel
Hugsaðu um litina á disknum
Blanda saman heitu og köldu
Klassískt meðlæti:
Sykurbrúnaðar kartöflur – karamelluhjúpaðar kartöflur eru himneskar
Rauðkál – klassískt meðlæti sem passar með nánast öllu og má alveg gera aðeins súrsætt með epli eða berjum.
Grænbaunamauk – ekki sama grænar baunir og grænar baunir
Rauðrófur – „Ilmurinn úr eldhúsinu er svo lokkandi”
Salötin:
Waldorfssalat – ferskt salat með eplum, sellerí, majónesi, vínberjum og valhnetum
Rauðrófu- og eplasalat – jólasalatið góða – hátíðasalatið mikla – best
Kartöflur:
Hasselback kartöflur – stökkar að utan, mjúkar og smjörkenndar að innan og fallegar á borði.
Gratineraðar kartöflur – bragðgott kartöflugratín með rjóma, hvítlauk og osti – fullkomið meðlæti með lambasteik og öðrum réttum
Besta kartöflusalatið – já einfaldlega best
Sætkartöflumús með hvítu súkkulaði – hvíta súkkulaðið lyftir músinni upp
Sætkartöflumús með kornflexsykurbráð – himneskt hátíðlegt meðlæti
Sykurbrúnaðar kartöflur – karamelluhjúpaðar kartöflur eru allra bestar
Sósur:
Rjómasveppssósa – svakalega góð
Bernaissósur – Bernaise sósa frá grunni er brjálæðislega góð
Annað:
Rabarbarasultan – það er eitthvað svo notalegt að bjóða upp á góða sultu með.
Áttu þitt uppáhalds meðlæti? Endilega segðu frá í athugasemdum 👇
–

