Sérlega matarmiklir dagar á Seyðisfirði
Vaskur hópur listafólks frumsýndi óperuna The Raven´s Kiss á Seyðisfirði um helgina. Listafólkið dvaldi saman í litlu fallegu húsi á staðnum í tvær vikur og ég tók að mér eldamennskuna. Mig langar bara að deila því með ykkur það er ekkert sérstaklega leiðinlegt að gefa óperusöngvurum og öðru tónlistarfólki að borða. Milli þess sem eldað var fyrir hópinn voru matgæðingar Austanlands heimsóttir. Hér eru nokkur dæmi um það sem var á boðstólnum.
— SEYÐISFJÖRÐUR —
.
16.ágúst. Að morgni afmælisdagsins fékk ég söng, heitt kakó og brownies
.
Snúðakakan fræga var reglulega á borðum. Stundum var Daim karamellukurl í staðinn fyrir rúsínur – það er mjög gott
Hver morgun byrjaði á skipulags- og stöðufundi og þá var boðið upp á nýbakaðar gerbollur oftast með sesam og hörfræjum
Jóna Kristín kom færandi hendi með stórt form með góðgæti í: Brotinn marensbotn og látinn þekja vel botninn í glermóti. Þeyttur rjómi, 1 dolla vanilluskyr, skafið úr einni vanillustöng, vel af brytjuðu mars-súkkulaði, ein söxuð pera. Öllu blandað saman með sleif og hellt yfir marensinn. Skreytt með þeim berjum sem fallegust eru í búðinni!
Hjónabandssæla. Í óperunni reynir ein persónan að heilla ungan sveitapilt með því að færa honum nýbakaða hjónabandssælu
Rabarbarapæ með karamellusúkkulaði slær alltaf í gegn.
Litfagur ananas- og kínóaréttur með fersku grænkáli og fjólubláu blómkáli.
Kókosbollusprengja. Þeyttur rjómi, ávextir, kókosbollur, Nóa kropp, piparmintukex og sítrónusafi
Epla- og makkarónueftirréttur. Þeyttur rjómi, söxuð epli, banani, sítrónusafi, makkarónur, rifið súkkulaði og piparmintukex.
Kjötbollur með nýuppteknum kartöflum, grænum baunum, lauksósu, sultu og rauðrófusalati
Eftir frumsýninguna slógum við Jóna Kristín upp veislu. Vinstra megin við miðju eru arfapestó og döðlu- og ólífupestó
Chili sin carne er einn af mínum uppáhaldsréttum
Auk þessa var farið í nokkur skemmtileg boð:
Við Bergþór vorum heiðursgestir hjá Royalistum í Neskaupstað
Þóra Guðmundsdóttir bauð öllum hópnum í mat og hafði kaniltertu á eftirmat
Sushi á NorðAustur. Einhver góðhjartaður bauð öllum hópnum í sushi á NorðAustur. Við vitum ekki hver sá góðhjartaði er en færum viðkomandi bestu þakkir
Jóhanna Gísladóttir bauð okkur í ofnbakaðan silung, því miður gleymdi ég að taka mynd af matargestunum
Borðuðum stórfínan mat hjá Sólveigu og Kári á Nielsen Restaurant
Hákon og Hafsteinn slógu upp eftirminnilegri veislu á Kirkjumel á Norðfirði
–
— SÉRLEGA MATARMIKLIR DAGAR Á SEYÐISFIRÐI —
–