Aðalbláberjabaka – alveg himnesk og á alltaf við

Einföld og sumarleg bláberjabaka með aðalbláberjum – fullkomin með kaffinu

0
Auglýsing
Aðalbláberjabaka

Aðalbláberjabaka

Þessi aðalbláberjabaka er einföld, falleg og einstaklega bragðgóð – fullkomin með kaffinu hvort sem er á björtum sumardegi eða dimmum vetrarkvöldum. Uppskriftin kemur úr föstudagskaffi þar sem Helga Bryndís mætti með böku úr aðalbláberjum úr Svarfaðardal – og hún sló algjörlega í gegn.

Hér færðu klassíska og áreiðanlega bláberjaböku sem er fljótleg í gerð og alltaf vinsæl.

Auglýsing

.

FÖSTUDAGSKAFFIÐBLÁBER — FÖSTUDAGSKAFFIР—

.

Aðalbláberjabaka

Botn

200 g hveiti
100 g smjör
2 msk sykur
1 msk vatn
1 eggjarauða
salt á hnífsoddi

Fylling:

4 dl (aðal)bláber
1 tsk kartöflumjöl
2 msk sykur

Botn: Hrærið vel saman í hrærivél og þjappið í bökuform.

Fylling: Blandið saman berjum, kartöflumjöli og sykri og setjið ofan á bökudeigið. Bakið við 200°C í 20–25 mínútur, eða þar til bakan er gullin og safarík

Gott að bera fram með þeyttum rjóma eða vanilluís.

Fátt toppar nýbakaða aðalbláberjaböku / bláberjaböku – sérstaklega þegar hún er borin fram volg með góðu kaffi og góðum gestum.

Fleira áhugavert:

Apríkósu- og gulrótamarmelaðiKurteisi á kaffihúsum – níu atriði Múffur með eplum og haframjöli — Döðlukonfekt, gott, gott — Humarveisla Önnu Rósu  — Forsetaísinn —

.

Fyrri færslaBláberja og sítrónubaka Clafoutis
Næsta færslaLondon, lon og don