Afmæliskringla

vínarbrauð súkkat Mamma bauð upp á kringluna í afmælinu sínu. Hér er hún með systkinum sínum, f.v. Friðrik steinsson, Sigríður steinsdóttir , Hulda steinsdóttir Aldamótaárið, Guðbjörg steinsdóttir Aldamótaárið og Sigrún steinsdóttirAldamótaárið gaf samband austfirskra kvenna út uppskriftakver sem nefndist Gagn og gaman austfiskra kvenna. Þar kennir margra grasa og hver gæða uppskrifin rekur aðra. bakað fyrir afmæli afmæliskaka hvað á ég að baka fyrir afmælið hver á afmæli gerbakstur súkkat
Afmæliskringla

Afmæliskringla

Aldamótaárið gaf Samband austfirskra kvenna út uppskriftakver sem nefndist Gagn og gaman austfiskra kvenna. Þar kennir margra grasa og hver gæða uppskrifin rekur aðra.

AFMÆLIGERBAKSTURSAMBAND AUSTFIRSKRA KVENNAKRINGLASÚKKATAFMÆLIMÖMMUUPPSKRIFTIR

🎈

Afmæliskringla – vinsæl hjá öllum

Afmæliskringla

deig
400 g hveiti (3 1/2 b)
250 g smjörlíki
1 pk þurrger
1 dl mjólk
1/2 dl volgt vatn
1 egg
1 msk sykur
1 tsk salt
2 tsk kardimommuduft.

Blandið þurrefnunum saman ásamt smjölíkinu (myljið smjölíkið saman við með höndunum), bætið við eggi. Blandið saman vatni og mjólk og leysið gerið upp í mjólkurblandinu blandið öllu saman og látið lyfta sér í um klst. Hnoðið og mótið lengju sem er um 1 m á lengd og 15 cm á breidd.

fylling:
100 g lint smjölíki
50 g sykur (1/2 dl)
rúsínur
súkkat
1 grænt epli smátt brytjuð

Hrærið saman smjörlíki og sykri. Smyrjið því á deigið, stráið epli, rúsínum og súkkati yfir og lokið. Mótið kringlu og setjið á plötu.

ofan á:
egg
möndlukurl
grófur sykur

Penslið með eggi, stráið möndlukurli og sykri yfir og bakið 200°C í 20 mín.

Afmæliskringla verður til. Neðst er smjörlíki og sykur og ofan á epli, rúsínur og súkkat.
Mamma bauð upp á kringluna í afmælinu sínu. Hér er hún með systkinum sínum, f.v. Friðrik, Sigríður, Hulda(mamma), Guðbjörg og Sigrún.

.

AFMÆLIGERBAKSTURSAMBAND AUSTFIRSKRA KVENNAKRINGLASÚKKATAFMÆLIMÖMMUUPPSKRIFTIR

AFMÆLISKRINGLA

🎈

Auglýsing

Meira úr sama flokki

Matarboð, fyrirlestur og fjör í Grundarfirði

Matarboð, fyrirlestur og fjör í Grundarfirði. Nýlokið er í Grundarfirði tíu daga bæjarbúahátið sem kallast Rökkurdagar, þá gera Grundfirðingar sér glaðan dag. Það kemur víst engum á óvart að harðduglegar kvenfélagskonur í bænum láta sitt ekki eftir liggja núna frekar en oft áður. Samfélagsábyrgð þeirra og ástundun er til fyrirmyndar. Síðasta vetur vorum við Bergþór með fyrirlestur hjá þeim um borðsiði, kurteisi og fleira skemmtilegt og núna fórum við Elísabet næringarfræðingurinn minn vestur og spjölluðum við konurnar í Samkomuhúsinu um mat, mikil áhrif matar á líkamann og margt fleira þessu tengt. Einstaklega líflegar umræður sköpuðust og margt bar á góma allt frá megrunarkaramellum til orkudrykkja

Gulrótaterta

Gulrótaterta. Alltaf er nú gott að fá sér (væna) sneið af gulrótartertu. Hef áður talað um að óhætt sé að minnka sykurmagn í tertum. Hér minnkaði ég bæði sykurinn í tertunni og í kreminu. Svei mér þá ef afraksturinn verður ekki enn betri... Já og ekki spara kanilinn, hafið teskeiðarnar vel fullar :-)