Heim Blogg Síða 183

Sítrónuskonsur

Sítrónuskonsur

Fljótlegar og auðveldar skonsur sem runnu ljúflega niður, tja ætli megi ekki segja að þær hafi horfið eins og dögg fyrir sólu.

.

SKONSURSCONESAFTERNOON TEA

.

Sítrónuskonsur

3 b (heil)hveiti

2 tsk lyftiduft… Lesa meira >

Kokteill ´63

Kokteill ´63

Fáskrúðsfjarðarskvísurnar Kristín, Stefanía, Helena, Hildur og Helga Jóna skála fyrir nýstofnuðum saumaklúbbi sínum. Sumarlegur og bragðgóður drykkur sem rennur ljúflega niður.

.

KOKTEILLFÁSKRÚÐSFJÖRÐURDRYKKIR

.

Kokteill ´63 (5 glös)

1 stk. stórt þroskað … Lesa meira >

Kaldur brauðréttur

Kaldur brauðréttur

Á sólríkum degi í byrjun sumars hitti ég nýstofnaðan saumaklúbb nokkurra Fáskrúðsfjarðarkvenna sem allar eru fæddar 1963 og eiga því stórafmæli í ár. Þær búa allar á höfuðborgarsvæðinu og eru þekktar fyrir mikinn matar- og tertuáhuga. Gaman að … Lesa meira >

Tómatpasta með ansjósum

Tómatpasta með ansjósum. Þessi réttur kemur frá Braga í gegnum Jamie Oliver og mun vera matur fátækra í Palermó á Sikiley. Það má nota tagliatelle eða spaghetti. Frábær réttur og rúsínurnar og furuhneturnar setja punktinn yfir i-ið

Tómatpasta með ansjósumLesa meira >

KIZIR – tyrkneskt salat

   KIZIR - tyrkneskt salat tyrkland búlgur

KIZIR – tyrkneskt salat. Maður er nefndur Gunnar, hann er náfrændi minn, býr og starfar í Tyrklandi og er mikill mataráhugamaður. Hann tók vel í að deila hér tyrkneskri uppskrift. En hvernig kom Tyrknesk matarmenning þeim fyrir sjónir?

„Þegar við … Lesa meira >

Ítalskt tómatasalat

Tómatasalat

Hjónin Gissur Páll og Sigrún eru bæði tvö framúrskarandi listakokkar. Hjónakornin bjuggu í nokkur ár á Ítalíu við nám, leik og eldamennsku. Þetta tómatasalat er í miklu uppáhaldi á heimili þeirra. Hins vegar nota þau sitt hvora aðferðina við … Lesa meira >

Skyrterta Maríu

Skyrterta Maríu

Eftir vel sótta tónleika Sætabrauðsdrengjanna í Neskaupstað göldruðu nöfnurnar og frænkur mínar María og dótturdóttir hennar, María Lív, fram veislu þar sem meðal annars var boðið upp á höfuga skyrtertu sem skreytt var með jarðarberjum úr garðinum. #Ekkinokkurleiðaðhættaaðborðaterta… Lesa meira >

Sítrónukjúklingur Gissurar Páls

Sítrónukjúklingur Gissurar Páls

Það er eins með Gissur Pál og aðra óperusöngvara sem ég þekki, hann hefur mjög mikinn áhuga á mat. Bæði er áhuginn á matargerðinni og ekki síður að borða góðan mat. Þennan ítalska kjúklingarétt galdraði hann fram … Lesa meira >

Rababarabaka góðrar grannkonu

Rababarabaka góðrar grannkonu

Bæjarstjórahjónin í Fjarðabyggð bauð Sætabrauðsdrengjunum í mat í frægðarför hópsins austur á land. Dásamlegur silungur rann ljúflega niður og á eftir var þessi góða rabarbarabaka.

.

HILDUR ÝRRABARBARINESKAUPSTAÐURSÆTABRAUÐSDRENGIRNIR

.… Lesa meira >

Silungur með mangóchutney og pistasíuhnetum

Silungur með mangóchutney og pistasíuhnetum

Það er mikill vandi að elda fisk svo hann verði alveg passlega steiktur (eða soðinn), þetta er ekki bara mínútu spursmál heldur næstum því spurning um sekúndur. Hildur Ýr og Páll Björgvin í Neskaupstað buðu … Lesa meira >

Don Giovanni terta

Don Giovanni terta

Ætli megi ekki segja að Margrét Eggertsdóttir söngkona hafi verið ókrýnd tertudrottning Íslands á sinni tíð. Margrét notaði uppskriftir lítið, enda með hafsjó af reynslu og upplýsingum í kollinum. Margir föluðust eftir uppskriftum, en með bros á … Lesa meira >

Döðlukaka með chili

Döðlukaka með chili

Bergþór minn fór í Síðdegisútvarpið á Rás 2 í dag færandi hendi með döðluköku. Þar fræddi hann hlustendur um tónleika sem verða á Austurlandi næstu daga. Döðlukakan var svolítið sérstök út af chilisúkkulaðinu, en þeir sem vilja … Lesa meira >