Ljómandi góð eplakaka
Gaman að segja frá því að Vilborg systir mín á afmæli í dag, sú sama og Villuterta er nefnd eftir. Hún bauð í afmæliskaffi og á borðum var fjöldinn allur af tertum og öðru góðgæti. Þar … Lesa meira >
Sumarleg og fersk terta sem á vel við þessa dagana þegar sólin baðar okkur geislum sínum. Við og við má heyra vangaveltur um hvort hráfæði sé ekki óheyrilega dýrt. Ef til vill er hráefnið eitthvað dýrara en … Lesa meira >
Á dögunum var ég niðursokkinn við að leita að góðri kjúklingauppskrift – þá hringdi Vigdís. Hún sagði mér frá vinsælum rétti á sínu heimili. Kjúklingur hjúpaður muldu Special K kornflexi. Vigdís var tekin á orðinu og rétturinn … Lesa meira >
Palak paneer er indverskur eða pakistanskur réttur úr spínati í þykkri kryddsósu. Ost í sósuna, „paneer“, fáum við ekki hér, svo að við notumst við sýrðan rjóma, en þar sem við staðfærum réttinn er ekki verra … Lesa meira >
Skiptir ekki oft máli að maturinn sé fallegur á litinn? Þessi súpa er bæði bragðgóð og fögur á litinn. Ef til vill finnst einhverjum of mikið að hafa tvær matskeiðar af engifer, auðvitað er ekkert … Lesa meira >
Spergilkálspestó. Er að missa mig í pestógerðinni, það þarf nú varla að taka það fram að spergilkálið er meinhollt og gott. Gaman hversu oft það fer saman að það sem er hollt er líka gott. Pestóið er gott með … Lesa meira >
Það er góð hugmynd að safna saman brauðafgöngum og búa til úr þeim brauðrasp. Brauðið sem ég notaði í þennan rétt þurrkaði ég í bakaraofninum og malaði svo í matvinnsluvélinni.
Rauðrófuhummús. Hráar rauðrófur eru enn hollari en soðnar rauðrófur. Stundum tökum við okkur til og kreystum safa úr ferskum rauðrófum og drekkum. Hratið má vel nota í grænmetisbuff og fleiri rétti.
Rauðrófuhummús
2 meðalstórar rauðrófur
1 msk cumín
2-3 … Lesa meira >
Um helgina vorum við í fermingarveislu, eins og áður hefur komið fram hér á síðunni er góð hugmynd af fá nokkra útvalda og úrvalsgóða fjölskyldumeðlimi eða vini til að létta undir með því að koma með tertur eða annað
Dillsósa. Sósa eins og þessi er kjörin með góðu grænu salati, já og grillmatnum og mörgu fleiru. Þar sem ég átti ekki ferskt dill þá notaði ég um eina og hálfa matseið af þurrkuðu dilli
Dillsósa
2 dl sýrður … Lesa meira >
Maður er nefndur Eiríkur Rafn, hann bauð til kaffifundar á dögunum og bar á borð alveg frábæra hrádöðlutertu. Vá! hvað er gaman að fá góðgæti eins og þessa tertu og finna að um allan líkamann streymir velíðan…