Möndlu- og sítrónubaka – alveg extragóð

Mjuk og safarík möndlubaka með ferskum sítrónukeim – fullkomin með kaffinu

0
Auglýsing
Möndlu- og sítrónubaka - alveg extragóð
Möndlu- og sítrónubaka – alveg extragóð

Möndlu- og sítrónubaka.

Helga Bryndís kom með extragóða böku með föstudagskaffinu – það má alveg venjast því að byrja föstudagsmorgna á tertum 😉

Það er eitthvað alveg sérstakt við möndlur og sítrónur saman – ferskleiki og mýkt sem hittast á fullkomnum stað. Þessi baka er einmitt þannig; mjúk, safarík og með léttan sítrónukeim sem gerir hana einstaklega góða með kaffinu.

Auglýsing

Bakan hentar jafnt sem kaffimeðlæti eða léttur eftirréttur.

.

SÍTRÓNUBÖKURMÖNDLURHELGA BRYNDÍS FÖSTUDAGSKAFFIÐ

.

 Möndlu- og sítrónubaka. Helga Bryndís magnúsdóttir kom með extragóða böku með föstudagskaffinu - það má alveg venjast því að byrja föstudagsmorgna á tertum ;) magnúsdóttir
Möndlu- og sítrónubaka

Möndlu- og sítrónubaka

200 g hveiti (ekki glúteinríkt)
100 g smjör (kalt)
2 msk sykur
1 msk vatn, ísjökulkalt
1 eggjarauða
salt á hnífsoddi

Blanda öllu saman með fingrunum, vinna deigið sem minnst.
Setja í plast og kæla í klukkustund (láta glúteinin jafna sig).
Fletja út í bökuform og pikka með gaffli. Gott að kæla aftur en ekki nauðsynlegt.
Baka við 180°í um 15 min.
Fari botninn að lyfta sér má setja á hann farg.

Fylling:
100 g smátt saxaðar möndlur
100 g sykur
rifið hýði af tveimur sítrónum
safi úr tveimur sítrónum
75 g smjör
4 egg

Blanda öllu saman í matvinnsluvél,
hellið í bökuna.
Bakið við 180°C í um 20 min, kannski meira, þar til bakan er gullinbrún og fögur.

Ef þú ert að leita að góðri möndlu- og sítrónuböku sem er bæði einföld og einstaklega bragðgóð, þá ertu á réttum stað.

Fleira áhugavert:

Fylltar döðlur með geitaosti Ræktið hvítlauk í blómapotti í glugganum —  Ís Grand MarnierGamaldags heilhveitibrauðPeruterta, þessi gamla góðaSkúffukaka sem klikkar aldreiSírópskökur

.

Fyrri færslaRótary – jólalög
Næsta færslaMadeira með Play